Skip to main content Search

Þetta getur þú gert með Fusion 360 - Vefnámskeið

Industry & Design

Frá hönnun í raunmyndir og greiningar

yfir í CNC - vinnslu/framleiðslu 

Vefnámskeiðið fer fram á ensku.

 

Haldið: 15. desember 2023

Lengd: 1 klukkustund og 26 mínútur.

Ókeypis vefnámskeið

Sameinaðu iðnaðarhönnun, hermun, samvinnu og CNC-framleiðslu á einum og sama stað frá hugmynd til vöru í einu og sama kerfing Fusion 360.

Fusion 360 er skýþjónusta sem inniheldur öll verkfæri sem þú þarft til að færa þig áreynslulaust frá hönnun til framleiðslu. Allt á einum stað. Fusion 360 sérfræðingur NTI, Arjen de Nobel, kennir þér hvernig þú gerir stafrænt líkan, fleytir því áfram og undirbýrð það fyrir framleiðslu fyrir CNC vélar með samþættun CAD/CAM. Frá hönnun yfir í að gera hágæða upplýsingar fyrir framleiðslu.

CAD og CAM vinna auðveldlega saman í Fusion 360

Hefð er fyrir því að verkfræði- og framleiðsluhlutinn tilheyri aðskildum heimum, CAD og CAM. Fusion 360 sameinar þessa tvo heima einu og sama kerfinu. Líkön hönnuð af verkfræðing er oft hægt að nota á skilvirkari hátt. Með Fusion 360 er hægt að skipuleggja fullkomið hönnunar- og framleiðsluferli á einum stað.

"Rendering" í skýinu

Með Fusion 360 getur þú búið til stórkostlegar raunmyndir. Frábær valkostur sem gefur þér öfluga fyrirsýn yfir hönnun og á vörum þínum frá öllum hugsanlegum sjónarhornum, sem þú getur deilt með viðskiptavinum þínum. Þú getur líka staðsett vöruna þína á teiknigrunn, í líkön eða punktaský, sem er næstum því ómögulegt að búa til í hinum raunheimi. Þetta gerist allt í skýinu, svo þú getur haldið áfram vinnu þinni á meðan rendering er í gangi. Auðvelt og fljótlegt.

Allt sem þú getur gert með Fusion 360

Á námskeiðinu byrjar Arjen að kenna þér hvernig á byrja verkefni og hönnun í Fusion 360 og setja upp verkteikningar. Næsta skref er undirbúningur fyrir hönnun yfir í framleiðslu á CNC vél. Eftir námskeiðið hefur þú náð tökum á grunnfærni í þeim verkfærum sem við mælum með að nota.

Skráðu þig núna, taktu fyrstu skrefin með okkur og náðu tökum á Fusion 360

Langar þig til að læra hvernig á að hanna hluti í þrívídd, einfalda eða flókna og undirbúa fyrir framleiðslu? Eða viltu læra og setja upp hágæða vélakóða svo þú getir nýtt CNC vélarnar þínar betur? Þá er þetta ókeypis Fusion 360 vefnámskeið fyrir þig!

Skráðu þig núna á þetta ókeypis námskeið á netinu!

Lestu meira um Autodesk Fusion 360

Register here