Notar þú Revit? Sjáðu hvernig DiRootsOne getur sparað þér tíma
📅 29. september 2026
🌐 Tungumál: Enska
Þú vinnur í Revit á hverjum degi og veist hversu mikill tími getur farið í verkferla sem hafa lítið með hönnunina sjálfa að gera: að slá sömu upplýsingar inn fyrir hundruð hluta, útbúa teikningablöð eitt í einu, búa til og endurnefna sömu teikningar og snið aftur og aftur og leiðrétta síðan ósamræmi áður en gögnin eru afhent.
Ekkert af þessu er flókið – en samanlagt getur þetta tekið margar klukkustundir í hverju verkefni.
Á vefkynningunni verður farið yfir
DiRootsOne er öflug lausn sem vinnur beint inni í Revit og hjálpar til við að einfalda tímafreka og endurtekna verkferla. Í vefkynningunni skoðum við þrjá algenga verkferla sem flestir Revit-notendur þekkja vel, hversu mikill tími fer í þá og hvernig hægt er að ná sömu niðurstöðu á mun skemmri tíma.
Engin forritun, ekkert Dynamo og engin þörf á að breyta því hvernig teymið þitt vinnur í dag.
Þrír verkferlar sem við sýnum í vefkynningunni:
- Uppfærsla gagna í líkaninu. Viðskiptavinur sendir Excel-skjal með upplýsingum um nokkur hundruð hluti. Í stað þess að uppfæra breyturnar (e. parameters) fyrir hvern hlut fyrir sig í Revit eru gögnin uppfærð í Excel og síðan flutt aftur inn í líkanið.
- Endurtekin teikningavinna. Búðu til sérteikningar, hæðarmyndir og snið fyrir hvert rými í byggingu á einfaldari hátt, í stað þess að búa þau til handvirkt eitt af öðru.
- Teikningablöð og teikningagerð. Útbúðu heildstætt sett teikningablaða út frá einu sniðmáti, samræmdu uppsetningu á öllum blöðum, endurnúmeraðu þau eftir uppsetningu og flyttu síðan allt settið út í PDF og DWG í einu.
Í lok vefkynningarinnar verður tími fyrir spurningar og umræður um þær áskoranir sem þú stendur frammi fyrir í Revit.
Engin fyrri reynsla af DiRoots eða Revit-viðbótum er nauðsynleg.
Skráðu þig hér
Fyrir hverja?
- Revit-notendur, arkitektar, byggingartæknifræðingar, byggingarverkfræðingar, MEP-verkfræðingar, BIM-samræmingaraðilar og þeir sem bera ábyrgð á teikningum og skjölun.
- Vefkynningin hentar einnig BIM- og CAD-stjórum, stjórnendum á sviði stafrænnar þróunar, tæknistjórum, hönnunarstjórum og verkefnastjórum.
David Purdon
David er Technical Director hjá NTI í Bretlandi og Írlandi og hefur mikinn áhuga á því hvernig nýta má tæknina til að einfalda vinnu og bæta árangur. Hann leggur áherslu á að samræma tæknilausnir þvert á fyrirtæki og verkefnateymi og hefur mikla reynslu af sjálfvirkni, gervigreind og sjónrænni framsetningu. David hefur 25 ára reynslu af því að hjálpa viðskiptavinum að nýta tæknina sem best og finna lausnir sem styðja við markmið þeirra og verkefni.
Vinicius Kawazoe
Vinicius stýrir þróun Revit-viðbóta og sérsniðinna hugbúnaðarlausna hjá DiRoots fyrir fyrirtæki á sviði arkitektúrs, byggingarverkfræði og mannvirkjahönnunar. Hann vinnur náið með hönnunarteymunum sem nota lausnirnar og leggur sérstaka áherslu á að draga úr endurtekinni og tímafrekri vinnu með sjálfvirkni, án þess að breyta því hvernig teymin vinna í Revit. Vinicius sér einnig um þjálfun og fræðslu um DiRoots-lausnir fyrir teymi NTI víðs vegar um Evrópu og í Brasilíu.
