Skip to main content Search

Chaos Enscape Collection

Heildarlausn fyrir myndsetningu, hönnun og sjálfbærni

Hafðu samband

 

Hvað er Enscape Collection?

Heildarlausn fyrir hönnunarferlið og myndsetningu

Hvort sem þú vinnur að hugmyndavinnu, hönnun eða kynningu verkefna veitir Chaos Enscape Collection (áður ArchDesign Collection) þér þau verkfæri sem þú þarft til að vinna hraðar, á einfaldari hátt og með meira skapandi frelsi.

Með rauntímamyndsetningu beint í CAD- og BIM-forritunum þínum, gervigreindarstuðningi við hugmyndaþróun, snjöllum verkfærum til eftirvinnslu og lausnum fyrir sjálfbærnigreiningar færðu heildstætt verkferli sem sparar tíma, eykur gæði og auðveldar samskipti í verkefnum þínum.

Innifalið í Enscape Collection

Enscape Collection sameinar þau verkfæri sem styðja við allt hönnunarferlið – frá fyrstu hugmyndum til fullunninnar kynningar.

Enscape – Myndsetning í rauntíma

Myndsetning verður til beint í BIM- eða CAD-forritinu þínu. Enscape samþættist Revit, SketchUp, Archicad, Rhino og Vectorworks, þannig að hægt er að skoða, meta og þróa hönnunina áfram í rauntíma.

Kostir:

  • Enginn útflutningur – þú vinnur beint í núverandi verkferli
  • Myndir, víðmyndir og VR-upplifanir verða til á örfáum sekúndum
  • Hægt er að deila hönnunartillögum og fara gagnvirkt yfir þær með viðskiptavinum og samstarfsaðilum

Sjá nánar um Enscape

Veras – Myndsetning með gervigreind

Veras flýtir fyrir hugmyndavinnunni með myndsetningu sem byggir á gervigreind, beint úr líkaninu þínu. Nýjar sjónrænar útfærslur veita ferska sýn á hönnunina án þess að breyta upprunalega líkaninu.

Kostir:

  • Auðvelt er að prófa mismunandi hönnunarhugmyndir og útfærslur
  • Sparar tíma á fyrstu stigum hönnunarferlisins
  • Einfalt notendaviðmót sem er samþætt núverandi verkfærum

Sjá nánar um Veras

Envision – Sjónræn framsetning í rauntíma

Envision hjálpar þér að skapa lifandi og áhrifaríka framsetningu verkefna. Myndir og hreyfimyndir verða til með raunverulegri lýsingu, umhverfi, fólki og mjúkum myndavélarhreyfingum.

Kostir:

  • Auðvelt í notkun – engin sérþekking á myndsetningu er nauðsynleg
  • Ljósmyndaraunsæar niðurstöður á skömmum tíma
  • Hentar vel fyrir kynningar, myndsetningu og hreyfimyndir

Sjá nánar um Envision

Impact – Sjálfbær hönnun með orkuhermun

Taktu upplýstar ákvarðanir um sjálfbærni strax frá upphafi verkefnisins. Impact hjálpar þér að greina orkunotkun bygginga snemma í hönnunarferlinu – á fljótlegan og einfaldan hátt, beint úr hönnunarverkfærinu þínu.

Kostir:

  • Sjónrænn stuðningur við sjálfbærar hönnunarákvarðanir
  • Samþætt núverandi hönnunarferli
  • Styður vottunarferli og markmið um sjálfbærni

Chaos Cosmos – Safn með tilbúnu efni


Chaos Cosmos auðveldar uppbyggingu sena með fjölbreyttu safni af tilbúnum líkönum, efnum og umhverfishlutum. Þannig sparast tími og gæði myndsetningar aukast án þess að yfirgefa vinnuumhverfið þitt.

Kostir:

  • Tilbúið efni fyrir VFX og umhverfishönnun
  • Hentar vel fyrir hugmyndaskissur og fullunnar myndsetningar
  • Þúsundir tilbúinna líkana, efna og umhverfishluta

1500 Chaos Credits – Fyrir cloud-renderingu og gervigreindareiginleika

Chaos Credits (áður Chaos Cloud) má nota fyrir cloud-renderingu, þannig að hægt er að mynda myndir og hreyfimyndir án þess að leggja álag á eigin tölvu. Credits eru einnig notuð fyrir ýmsa gervigreindareiginleika í Chaos-vörunum.

Chaos Credits má nota fyrir:

  • Cloud rendering
  • AI Enhancer og Upscaler
  • Myndgerð með Nano Banana
  • Image-to-video í Veras

Sjá nánar um Chaos Credits

Heildarlausn frá hugmynd til kynningar

Með Chaos Enscape Collection færðu heildarlausn sem styður allt hönnunarferlið – allt frá fyrstu skissum og hugmyndum til myndsetningar, kynninga og orkuhermunar.

Í stað þess að vinna í mörgum mismunandi forritum færðu samfelldan verkferil sem sparar tíma, eykur gæði og auðveldar miðlun hugmynda og verkefna. Jafnframt færðu þau verkfæri sem þarf til að skapa áhrifaríka og sjónrænt sterka framsetningu.

Viltu fá nánari upplýsingar eða sjá lausnina í notkun? Sérfræðingar okkar hjálpa þér að finna þá lausn sem hentar þínum þörfum, hvort sem þú starfar sem arkitekt, ráðgjafi eða sérfræðingur í myndsetningu.

chaos-platinum-partner-450x160.jpg

Sem Chaos Platinum Partner hjálpar NTI þér að fá sem mest út úr Chaos-lausnunum. Með öflugri tækni fyrir myndsetningu og sjóngervingu geturðu skapað áhrifaríka sjónræna framsetningu, eflt skapandi samstarf og komið hugmyndum hraðar í framkvæmd.

 

Kynning, leyfi og verð fyrir Enscape Collection

Ertu að íhuga Chaos Enscape Collection og vilt fá upplýsingar um verð eða bóka ókeypis kynningu?

Verð

Verðið fer eftir samningstíma og fjölda leyfa. Verð geta einnig breyst í samræmi við verðbreytingar frá Chaos.

Hafðu samband við okkur ef þú vilt fá tilboð eða ráðgjöf um hvaða leyfisleið hentar þínum þörfum.

Ókeypis kynning

Bókaðu ókeypis kynningu með sérfræðingum okkar í myndsetningu og sjáðu hvernig Enscape Collection styður allt hönnunarferlið – frá fyrstu hugmyndum til myndsetningar, kynninga og sjálfbærnigreininga.

Hafðu samband við okkur og við finnum tíma sem hentar þér.

 

Af hverju að kaupa Enscape Collection hjá NTI?

  • NTI er einn stærsti Chaos samstarfsaðili í Evrópu og hefur Platinum Partner-vottun. Við bjóðum upp á alla Chaos-vörulínuna og hjálpum fyrirtækjum að fá sem mest út úr hugbúnaðinum sínum.
  • Sérfræðingar okkar búa yfir víðtækri reynslu á sviði byggingar-, hönnunar- og tæknigreina og þekkja vel þær áskoranir og þarfir sem einkenna ólík atvinnusvið.
  • Við styðjum þig í gegnum allt ferlið – allt frá ráðgjöf, leyfismálum og innleiðingu til þjálfunar, tækniaðstoðar og áframhaldandi ráðgjafar.

Forvitin/n að vita meira?

Sendu fyrirspurn

Árni Guðmundur Guðmundsson

Sölustjóri NTI á Íslandi

Reykjavík - Ísland

+354 537 1945