Mat á Autodesk-námskeiði
Sem þátttakandi í námskeiði hjá NTI ehf. færðu tækifæri til að staðfesta nýfengna þekkingu með vottorði.
Ef þú hefur tekið þátt í Autodesk-námskeiði hjá okkur þarftu að skila mati á námskeiðinu til að fá vottorð frá Autodesk.
Autodesk-matið klárar þú í þremur einföldum skrefum
1. Skráning
Skráðu þig í gegnum þennan hlekk: https://education.autodesk.com/register
ATH: Ekki haka við reitinn „Are you a student“ – hann er eingöngu ætlaður háskólanemum, nemendum í tækniskólum o.s.frv.
Til að geta prentað út vottorð frá Autodesk þarftu að velja „YES“ þegar þú ert spurð(ur) hvort þú viljir taka þátt í könnun um námskeiðið frá Autodesk.
2. Mat
Matið fer fram í gegnum þennan hlekk: https://education.autodesk.com/login-student
- Veldu „Course“
- Smelltu á „Search Course“
- Sláðu inn „Course ID“ (þú finnur það í tölvupóstinum frá NTI)
- Veldu „Search“
- Smelltu á „Enroll this Course“
Farið síðan í „Dashboard“, veldu „My Courses“, og síðan „NOT completed“
Byrjaðu á matinu.
ATH: Þú þarft að ljúka matinu innan 30 daga frá því að námskeiðinu lýkur
3. Autodesk-vottorð
Þegar þú hefur lokið matinu, finnurðu námskeiðið undir "Finished Course" á "Dashboard". Þar geturðu hlaðið niður Autodesk-vottorðinu þínu.
Veldu "Download click here" undir "Download Certificate" til að sækja vottorðið.