2027 State of Design & Make Report
nóvember 2026Rannsókn ársins birtist á tímum gríðarlegra breytinga. Gervigreind er að umbylta því hvernig unnið er og sjálfbærni er orðin forgangsmál í rekstri. Efnahagsleg óvissa, skortur á starfsfólki og auknar kröfur viðskiptavina knýja fyrirtæki til að endurhugsa hvernig þau starfa. Ekkert lát er á breytingunum og kröfurnar til þeirra sem leiða þær minnka ekki heldur.
Hvað aðgreinir þau fyrirtæki sem ná mestu forskoti?
Samkvæmt nýjustu rannsókn Autodesk, State of Design & Make, er það hvorki ein tiltekin tækni, eitt verkefni né ein fjárfesting. Það er hæfnin til að tengja saman stafræna umbreytingu, gervigreind og sjálfbærni þannig að hver þáttur styrki hina.
Meðal þeirra 5.500 stjórnenda og sérfræðinga sem tóku þátt í könnuninni stóðu aðeins 11% stöðugt fram úr keppinautum sínum. Þessi fyrirtæki, kölluð „Pacesetters“, voru líklegri til að fara fram úr væntingum um rekstrarárangur (85% á móti 50%), kynna nýjar vörur og þjónustu (92% á móti 66%) og vera undirbúin fyrir efnahagslegt og pólitískt umrót á heimsvísu (93% á móti 59%).
Skýrslan 2027 State of Design & Make skoðar hvað aðgreinir þessi fyrirtæki og hvers vegna samþætting þessara þátta er að verða nýja samkeppnisforskotið.
Helstu niðurstöður skýrslunnar
Stafræn umbreyting er vegferð, ekki áfangastaður
98% stjórnenda segja stafræna umbreytingu hafa skilað mælanlegum ávinningi og niðurstöðurnar sýna að viðskiptalegur ávinningur hennar verður sífellt skýrari. Kostnaður er enn veruleg áskorun, en fyrirtæki gera sér æ betur grein fyrir því að það er hæfni starfsfólks, en ekki tæknin sjálf, sem er að verða helsti þröskuldurinn fyrir frekari framþróun. Færri fyrirtæki líta nú á sig sem stafrænt þroskuð, eða 44% árið 2027 samanborið við 63% árið 2024. Stafrænn þroski er ekki lengur áfangastaður heldur geta sem fyrirtæki þurfa stöðugt að efla.
Í samanburði við önnur fyrirtæki eru „Pacesetters“ líklegri til að setja stafrænar vörur og þjónustu í forgang (88% á móti 60%), tryggja að innri gögn séu rétt (93% á móti 74%) og halda áfram að auka fjárfestingu í tækni.
Gervigreind er nauðsyn, en innleiðingin flókin
Í fyrsta sinn hefur tækniþróun, þar á meðal gervigreind, tekið fram úr kostnaðarstjórnun sem helsta áhyggjuefni fyrirtækja. Hlutfallið hefur hækkað úr 31% árið 2025 í 40% árið 2027. Breytingin endurspeglar meira en vaxandi áhuga á gervigreind. Hún markar breyttar áherslur stjórnenda, þar sem fyrirtæki eru að færa sig frá tilraunum með gervigreind yfir í að gera hana að hluta af daglegu starfi. 75% fyrirtækja hyggjast auka fjárfestingu í gervigreind á næstu þremur árum.
Munurinn á „Pacesetters“ og öðrum fyrirtækjum felst ekki einfaldlega í því að þau fjárfesti meira í gervigreind. „Pacesetters“ eru mun líklegri til að vera með sérstök teymi sem bera ábyrgð á innleiðingu gervigreindar (94% á móti 61%), trausta gagnasamstarfsaðila (92% á móti 65%) og samtengd kerfi sem sameina upplýsingar þvert á fyrirtækið (91% á móti 60%).
