Skip to main content Search

M11 Arkitektar taka lífsferilsgreiningu (LCA) opnum örmum - með því að vera leiðandi við innleiðingu nýrra opinberra loftslagskrafna á Íslandi

Construction

Hvernig íslensk arkitektastofa breytti nýjum opinberum kröfum í tækifæri með því að samþætta þær við sjálfbærni í hönnunarvinnu.

Áskorun

Skylda hönnuða til að skila lífsferilsgreiningu (LCA), fyrir tilteknar tegundir bygginga, tók gildi í september 2025. Það var stórt skref fyrir markað sem er að byggja upp þekkingu á LCA.

Lausn

Real-Time LCA vinnur með BIM verkferlum M11 Arkitekta. Með því að nota gagnadrifna verkferla er greining á kolefnisspori hluti daglegrar vinnu hönnuða.

Niðurstaða

Með notkun á Real-Time LCA eru LCA útreikningar hraðari og gagnsærri frá upphafi en einnig er sjálfbærni samþætt við verklag frá upphafi verkefna.

Nýr kafli í lífsferilsgreiningu (LCA) á Íslandi

Ísland bættist í hóp Norðurlandanna þegar kröfur um lífsferilsgreiningu (LCA) fyrir byggingar tóku gildi 1. september 2025. Samkvæmt reglum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) þarf að skila lífsferilsgreiningu sem hluta af umsókn um byggingarleyfi fyrir flest nýbyggingarverkefni. Greiningin þarf að ná yfir allan líftíma mannvirkisins.

Fyrir markað sem er að stíga sín fyrstu skref með lífsferilsgreiningu (LCA) felur þessi breyting bæði í sér áskoranir og tækifæri. Ísland hefur ekki byggt upp nægjanlega stóran gagnagrunn um umhverfisáhrif bygginga né verkferla sem eru jafn rótgrónir og hafa byggst upp í Danmörku, Noregi eða Svíþjóð. Það sem íslenski markaðurinn hefur hins vegar er öflugur hópur fagfólks sem er tilbúinn að fjárfesta í tækjum, lausnum og þekkingu til að gera vinnuna vel frá upphafi.

Real-Time LCA hefur unnið náið með fyrirtækjum víðs vegar um Ísland í gegnum þessar breytingar. Þegar Real-Time LCA teymið heimsótti Reykjavík í byrjun árs 2026 gafst tækifæri til að styrkja þessi tengsl og sjá með eigin augum hvernig markaðurinn var að þróast. M11 Arkitektar eru meðal þeirra sem leiddu þá þróun með skýra stefnu í þessum málum.

Sjálfbærni sem hluti af faglegri ábyrgð

Undir stjórn arkitektsins Hugrúnar Þorsteinsdóttur, og byggingafræðingsins Jóns Grétars Magnússonar, vinna M11 Arkitektar að íbúðar-, atvinnu- og opinberum verkefnum víðs vegar um landið. Stofan sameinar þekkingu mismunandi fagsviða, arkitektúr og verkfræði, undir einu þaki. Sú nálgun hjálpar til við að móta hönnun, efnisval og langtímavirkni bygginga. Hjá M11 Arkitektum er sjálfbærni ekki bara opinber krafa. Hún er sjálfsagður hluti af faglegum vinnubrögðum sem taka mið af íslenskum aðstæðum.

„Sem arkitektar berum við mikla ábyrgð á því hvernig byggingar framtíðarinnar þróast og hafa áhrif á umhverfi sitt – ekki aðeins hvað varðar form og hönnun, heldur einnig það loftslagsfótspor sem þær skilja eftir fyrir komandi kynslóðir.“ - M11 Arkitektar

Að starfa á Íslandi setur enn meiri kröfur á þessa ábyrgð. Náttúra Íslands er viðkvæm. Aðgengi að byggingarefnum er takmarkað. Oft þarf að flytja efni langar vegalengdir sem getur verið bæði kostnaðarsamt og kolefnisfrekt. Þessar aðstæður gera sjálfbæra hönnun ekki aðeins að markmiði, heldur raunverulegri nauðsyn.

„Markmið okkar er að skila landi, byggingum og umhverfi í betra ástandi en við tókum við þeim – til hagsbóta fyrir komandi kynslóðir. Fyrir okkur er sjálfbærni í mannvirkjagerð grundvallaratriði. Hún snýst um að lágmarka umhverfisáhrif án þess að skerða gæði í hönnun eða virkni. Sjálfbærni er ekki aukaatriði, heldur órjúfanlegur hluti af allri hönnun og ákvarðanatöku.“ - M11 Arkitektar

Margir möguleikar með LCA verkfærum sem standast nútíma kröfur

Með Real-Time LCA fékk M11 það sem íslenski markaðurinn hafði beðið eftir: möguleikann á að taka upplýstar, gagnadrifnar ákvarðanir snemma í hönnunarferlinu, þegar áhrif þeirra eru mest.

„Nútímaleg LCA lausn gerir okkur kleift að taka upplýstar, gagnadrifnar ákvarðanir snemma í hönnunarferlinu, þegar áhrifin eru mest. Hún veitir skýra yfirsýn yfir kolefnisspor efna og hönnunarlausna og gerir okkur kleift að bera saman valkosti á skipulagðan hátt og velja ábyrgari leiðir.“ - M11 Arkitektar

Samþætting við hönnunarhugbúnað hefur reynst mikill kostur. Í stað þess að líta á lífsferilsgreiningu (LCA) sem aðskilið og tímafrekt ferli sem gera þarf í lok verkefna, þá gerir Real-Time LCA það verkefni hluta af daglegu verkflæði hönnunar. Samanburður á efnisvali og mismunandi byggingaraðferðum og eftirfylgni með kolefnisáhrifum miðað við markmið verkefna verður þannig eðlilegur hluti af hönnunarferlinu hjá M11 Arkitektum í staðinn fyrir að vera truflandi.

Lausnin hefur einnig haft jákvæð áhrif á samskipti M11 Arkitekta við viðskiptavini og aðra sem koma að verkefnum. Með því að gera sjálfbærni mælanlega og áþreifanlega verða umræður um efnisval og umhverfismarkmið byggðar á raunverulegum gögnum, fremur en huglægu mati.

Ráðleggingar fyrir sjálfbærari byggingaraðferðir á Íslandi

  • Sjálfbærni þarf að vera hluti af hönnun frá fyrsta degi, ekki sem viðbót á seinni stigum, heldur sem kjarni í hönnunarhugsun frá fyrstu skissum.
  • Náin samvinna arkitekta, verkfræðinga og viðskiptavina frá upphafi skiptir sköpum. LCA nýtist best þegar hún styður sameiginlega ákvarðanatöku – ekki þegar unnið er í aðskildum hópum.
  • Áreiðanleg verkfæri sem styðja ákvarðanatöku í gegnum allt verkefnið skipta sköpum. Áreiðanleg gögn og aðgengilegur hugbúnaður er nauðsynlegur þáttur fyrir markvissa LCA greiningu.
  • Áhersla á endingu, aðlögunarhæfni og hagkvæma efnisnotkun dregur úr umhverfisáhrifum yfir allan líftíma mannvirkisins, ekki aðeins við afhendingu þess.

Þessar ráðleggingar hafa sérstaka þýðingu á Íslandi um þessar mundir. Þar sem kröfur um lífsferilsgreiningu (LCA) eru enn nýjar, þá eru frumkvöðlar eins og M11 Arkitektar ekki aðeins að uppfylla opinberar kröfur, heldur eru þau jafnframt að móta fagleg vinnubrögð í byggingariðnaði.

Hafðu samband

Kasper Brünings

Kerfisráðgjafi

+354 415 0522