MAKEEN Energy eflir þekkingu og sparar tíma með My NTI Academy
February 2026Hjá orkufyrirtækinu MAKEEN Energy hefur innleiðing My NTI Academy skapað nýjan staðal fyrir nám og þekkingarmiðlun
–með sveigjanlegri lausn sem sameinar alþjóðleg teymi, innanhúsþekkingu og stafrænar námsleiðir á einum stað.
Áskorun
MAKEEN vildi uppfæra þekkingu starfsfólks í tengslum við stóra hugbúnaðaruppfærslu í Inventor og þurfti því á sveigjanlegri lausn að halda sem hentaði alþjóðlegu fyrirtæki með mörg verkefni og mismunandi tímabelti.
Lausn
My NTI Academy Business Plus var innleitt – stafrænn námsvettvangur þar sem starfsmenn geta tekið námskeið á sínum eigin hraða. Vettvangurinn var aðlagaður að vörumerki MAKEEN og bætt við eigin námskeiðum og aðferðaleiðbeiningum fyrirtækisins.
Árangur
MAKEEN hefur eflt þekkingu starfsfólks, gert nýliðaþjálfun og miðlun þekkingar skilvirkari og auðveldað aðlögun og endurnýtingu námskeiðsefnis, bæði staðbundið og á heimsvísu. Vettvangurinn er nú notaður þvert á lönd og deildir.
Sveigjanlegt nám fyrir alþjóðlegt fyrirtæki
Í tengslum við uppfærsluna úr Inventor 2021 í 2025 stóð MAKEEN Energy frammi fyrir vel þekktri áskorun: starfsfólkið þurfti að kynnast nýjum eiginleikum, en ekki var mögulegt að kalla alla saman á einn stað.
Með höfuðstöðvar í Danmörku, framleiðslueiningar á Srí Lanka og í Frakklandi og 20 skrifstofur víðs vegar um heiminn, kallaði þessi staða á lausn sem hægt væri að innleiða á heimsvísu og nýta með sveigjanlegum hætti
„Við getum ekki bara sagt öllum að mæta á þriðjudegi klukkan 9. Fólk vinnur á mismunandi tímabeltum og er upptekið í verkefnum. Það þarf að geta tekið námskeið þegar því hentar,“ útskýrir Reza Talebnasab, CAD-stjórnandi hjá MAKEEN Energy.
Lausnin var My NTI Academy, námsumhverfi sem gerir starfsfólki kleift að læra þegar það hentar í daglegu starfi, óháð því hvar í heiminum það starfar.
Hittu viðmælandann

Reza Talebnasab, CAD-stjórnandi hjá MAKEEN Energy.
Námsumhverfi með eigin nafni og útliti
Með My NTI Academy fékk MAKEEN lausn sem hægt var að sérsníða að þörfum fyrirtækisins, bæði tæknilega og sjónrænt. Námsumhverfið hefur verið aðlagað með merki fyrirtækisins, litum og myndefni þannig að það samræmist sjónrænu auðkenni þess. Innanhúss hefur MAKEEN gefið lausninni nafnið MECAD, sem þjónar sem miðlægur vettvangur fyrir nám og miðlun þekkingar.
Þar hefur starfsfólk aðgang að fjölbreyttu úrvali vefnámskeiða, bæði um Autodesk-lausnir og önnur gagnleg verkfæri á borð við Office og Excel. Námskeiðin er hægt að taka á eigin hraða, óháð því hvar í heiminum notendurnir eru staddir.
MAKEEN hefur einnig byggt upp sín eigin fyrirtækja námskeið beint í námsumhverfinu. Eitt dæmi er aðferðanámskeið í Plant 3D sem tryggir að allir vinni eftir sömu stöðlum og aðferðum. Námskeiðið er bæði notað við nýliðaþjálfun og til að uppfæra þekkingu hjá starfandi starfsfólki.
„Við tökum líka upp innanhússþjálfun, til dæmis vinnustofur með sérfræðingum okkar, svo starfsfólk geti horft á efnið síðar eða rifjað það upp ef það komst ekki í fyrsta skiptið. Það sparar tíma og gerir auðveldara að miðla og endurnýta þekkinguna,“ segir Reza.
Gervigreindaraðstoð einfaldar uppbyggingu námskeiða
Mikilvægur stuðningur við gerð eigin námskeiða er innbyggð gervigreindarvirkni í My NTI Academy, sem hjálpar til við að setja upp og skipuleggja nýtt námskeiðsefni.
„Gervigreindaraðstoðin leggur til hvernig best sé að byggja námskeiðið upp, hvaða atriði eigi að taka með og í hvaða röð. Það sparar okkur mikinn tíma á undirbúningsstigi,“ segir Reza.
MAKEEN bætir sjálft við námskeiðsefninu, en þessi uppbygging gerir auðveldara að halda yfirsýn og tryggja að ekkert gleymist. Hún auðveldar einnig að viðhalda samræmi og gæðum í innri námslotum.
Stuðningur í daglegri vinnu
Annar eiginleiki sem hefur fengið mikið lof meðal notenda hjá MAKEEN er samþætting kerfisins við Autodesk Inventor. Með viðbótinni geta notendur fengið tillögur að viðeigandi námskeiðum og leiðbeiningum einmitt þegar þeir eru að nota tiltekið verkfæri í forritinu.
„Ef þú rekst á verkfæri eða virkni sem þú manst ekki alveg hvernig á að nota, sýnir kerfið þér myndband eða æfingu svo þú getir fljótt haldið áfram. Það gerir starfsfólkið sjálfstæðara og sparar tíma sem annars færi í stuðning,“ útskýrir Reza.
Viðbótin reyndist til dæmis sérstaklega gagnleg við uppfærsluna í Inventor 2025, þegar nýir eiginleikar bættust við.
Nám sem eðlilegur hluti af daglegu starfi
Frá því að My NTI Academy var innleitt hefur lausnin þróast úr því að vera námsverkfæri yfir í að verða samþættur hluti af því hvernig MAKEEN vinnur og lærir. Starfsfólk miðlar þekkingu, horfir aftur á efni sem á við hverju sinni og sækir námskeið þegar þörf krefur, án þess að það kalli á sérstaka skipulagningu.
„Við erum fyrirtæki með margar fastmótaðar venjur, en þegar eitthvað virkar og bætir vinnuna þá tileinkar fólk sér það. Þetta hefur sannarlega opnað á nýjar leiðir til að hugsa og vinna saman,“ segir Reza að lokum.
Þetta á ekki aðeins við um CAD-sérfræðinga heldur einnig verkefnastjóra og aðra faghópa sem hafa haft gagn af fjölbreyttu efni námsumhverfisins.
Með því að safna þjálfun, skjölun og innanhúsþekkingu á einn stað hefur MAKEEN byggt upp námsumhverfi sem ekki aðeins eykur þekkingu heldur auðveldar einnig starfsfólki að halda sér upplýstu og leggja virkan þátt til starfseminnar.
Við leiðbeinum þér – alla leið
Sölufulltrúi
+354 537 1945
