Vefkynning: Nýjar LCA-kröfur fyrir nýbyggingar á Íslandi
Vertu undirbúinn fyrir LCA-kröfurnar og fáðu innsýn frá HMS, hönnuðum og sérfræðingum hvernig hægt er að undirbúa vel sig fyrir breytingarnar.
📅 Dagsetning: 3. júní, 2025
⏱️ Tími: 1 klst. og 15 mín.
Tungumál: Íslenska og enska
Byggingariðnaðurinn á Íslandi stendur frammi fyrir breytingum. Nýjar reglur um lífsferilsgreiningu (LCA) á byggingum eru á næsta leiti og krefjast þess að fagfólk aðlagi sig – bæði til að fylgja lögum og til að styðja við sjálfbærari framtíð. Taktu þátt í þessari mikilvægu vefkynningu þar sem sérfræðingar veita þér innsýn í reglugerðir, hagnýta vinnuferla og tæknilausnir sem styðja við reglugerðarbreytinguna sem tekur gildi 1. september næst komandi. Vefsíða HMS og lífsferilsgreiningar
Dagskrá og fyrirlesarar
Vefkynningin tekur 75 mínútur og skiptist í þrjú hnitmiðuð erindi sem hvert og eitt gefur þér skýra mynd af því hvernig hægt er að mæta nýju LCA-kröfunum.
Register here |
Dagskrá
1. Regluverkið: Nýtt landslag
Fyrirlesari: Elín Þórólfsdóttir frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Elín Þórólfsdóttir, sérfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), kynnir nýtt regluverk um lífsferilsgreiningar (LCA) fyrir nýbyggingar. Hún fer yfir helstu kröfur sem eru á leiðinni, tímalínu fyrir innleiðingu og hvað hönnuðir, verkfræðingar og framkvæmdaaðilar þurfa að gera til að vera vel undirbúin.
Lykilatriði:
- Yfirlit yfir nýju reglurnar um lífsferilsgreiningar á Íslandi
- Áhrif á hönnun, leyfisveitingar og skjölun
- Samstarf opinberra aðila og einkageirans
2. Hönnunarflæði í breyttu regluumhverfi
Fyrirlesarar: Viggó Magnússon frá Arkís arkitektum og Almar Eggertsson frá Faglausn, hönnunar og ráðgjafarstofa.
Tvö fyrirtæki sýna hvernig þær hafa aðlagað hönnunarvinnu að nýjum kröfum og samþætt sjálfbærni í ferlið. Viggó og Almar deila reynslu sinni, þeim áskorunum sem þeir hafa mætt og aðgerðum sem þeir hafa þegar innleitt.
Lykilatriði:
- Hvernig mæta má nýju regluverki í hönnun og framkvæmd
- Lærdómur af aðlögun vinnuflæðis og ferla
- Jafnvægi milli sköpunar og eftirfylgni við regluverk
3. Tæknilausnir: Real-Time LCA í verki
Fyrirlesari: Mads Ditlevsen frá Real-Time LCA
Hér kynnum við hvernig háþróuð stafræn verkfæri geta flýtt fyrir sjálfbærri byggingahönnun, aukið nákvæmni og stutt við betra samstarf. Mads/Kasper mun sýna Real-Time LCA kerfið og sýna hvernig hægt er að straumlínulaga skjölun, greiningu og samvinnu í tengslum við lífsferilsgreiningar – án þess að hægja á framvindu verkefna. Vefsíða Real-Time LCA
Lykilatriði:
- Sýnikennsla á rauntímavinnuflæði í Real-Time LCA
- Sjálfvirknivæðing skýrslugerðar og samræming við reglur
- Samvinna teymis í gegnum skýjatengda LCA-lausn
Af hverju ættir þú að taka þátt?
- Til að vera skrefi á undan nýju regluverki sem mun móta íslenskan byggingariðnað
- Að lærða og fá upplýsingar beint frá yfirvöldum, fagaðilum og sérfræðingum
- Fá hagnýt ráð til að tryggja að verkefnin þín uppfylli framtíðarkröfur
- Tengja þig við fagaðila sem vinna að sjálfbærri uppbyggingu

Sölustjóri NTI á Íslandi
Reykjavík - Ísland
+354 537 1945