Frá Vault Basic yfir í Vault Professional – hver er ávinningurinn?
Við veitum innsýn í hvernig þú getur dregið úr villum, sparað tíma og náð betri stjórn á gögnunum þínum – með skipulögðum verkferlum og bættri samvinnu.
🗓️ Dagsetning: 24. febrúar 2026
⏱️Tími: 09:30–10:30
Ert þú að nota Vault Basic? Þá gætir þú verið að glíma við takmarkaða útgáfustýringu, verkferla sem skorta betri festu og tímafreka handvirka skjölun.
Taktu þátt í vefkynningunni þar sem við berum saman Vault Basic og Vault Professional og hvað getur skipt miklu máli í daglegum ferlum. Þú færð innsýn í hvernig þú getur bætt verkferlana með meiri yfirsýn, betri samvinnu og auknum gagnagæðum.
Margir sem nota Vault Basic upplifa eftirfarandi:
- Takmarkaða útgáfustýringu – erfitt að tryggja að unnið sé í réttri útgáfu skjala.
- Lítil stjórn á aðgangsheimildum- ekki hægt að skilgreina hlutverk og ábyrgð með skýrum hætti.
- Tímafrek handvirk skjölun – ferlar sem eru byggðir á minni og handavinnu hvers starfsmanns.
- Takmarkaða rekjanleika – erfitt að sjá hver breytti hverju og hvenær.
- Skortur á sjálfvirkni – sem eykur hættu á mistökum og hægir á afköstum.
Kannast þú við þetta? Þá er kominn tími til að skoða aðra lausn.
Við förum yfir hindranir sem margir lenda í með Vault Basic og sýnum hvernig Vault Professional veitir betri stjórn, aukna sjálfvirkni og öruggari meðhöndlun á hönnunargögnum.
Lykilatriði vefkynningarinnar:
- Hvernig sjálfvirk útgáfustýring í Vault Professional tryggir áreiðanleg gögn og aðgang að réttri útgáfu.
- Hvernig hægt er að stýra aðgangi og hlutverkum í Vault Professional út frá ábyrgð og starfshlutverki hvers notanda.
- Hvernig hægt er að setja upp sjálfvirka skjalaútgáfu með Vault Professional og NTI FOR VAULT – t.d. fyrir útgáfu á STEP- og Excel-skrám.
- Hvernig „items“-einingar í Vault Professional veita heildaryfirsýn yfir skjalaferla og samanburð á efnislistum (BOM).
- Hvernig staðfesting gagna og aðgangur í gegnum vafra (Thin client) í Vault Professional getur dregið úr mistökum og bætt samvinnu.
- Hvernig NTI FOR VAULT Job og Client nýtast með Vault Professional til að auka sjálfvirkni, tryggja að gögn uppfylli skilgreind skilyrði og til að samræma kerfi.
Við viljum leggja áherslu á hvernig þessir eiginleikar aðstoða að stjórna gögnum, minnka handavinnu og koma í veg fyrir óþarfa mistök í daglegu starfi.
Skráðu þig og sjáðu hvernig gögnin geta unnið með þér en ekki gegn þér.
