Gerðu fasteignarekstur betri með þrívíddarskönnun og FRU/FM(Fasteignarekstur og umsjón/ Facility Management)
Ertu með yfirsýn yfir alla fermetrana, skjölun og byggingargögn? Þrívíddarskönnun getur verið lykillinn að betri rekstri og fjárhagslegum ávinningi.
🗓️ Dagsetning: 31. mars 2026
⏱️ Tími: kl. 09:00–10:00
Margir í fasteignarekstri vinna í blindni – en það þarf ekki að vera þannig
Veistu í raun hversu marga fermetra þú ert með í rekstri? Veistu hvar lagnir liggja, hvort skemmdir hafi orðið fyrir eða eftir afhendingu – og hvar nýjustu teikningar eru í raun og veru?
Alltof margir aðilar í fasteignarekstri starfa með ófullnægjandi, ónákvæm eða úrelt gögn. Stafræn skjölun gagna er mjög ábótavant og ákvarðanir byggja á handvirkum mælingum, gömlum PDF-teikningum og upplýsingum af minnismiðum.
Með þrívíddarskönnun færðu nákvæmt og sjónrænt yfirlit yfir núverandi ástand byggingar – alveg niður á hverja sprungu, lagnir og fermetra. Gögnin skapa traustan grunn fyrir rekstur, betri ákvarðanatöku og skjalfest viðhald.
Á vefkynningunni skoðum við hvernig þrívíddarskönnun og fasteignarekstur og umsjón(FM) virka mjög vel saman og hvernig þú getur nýtt þér lausnirnar, hvort sem þú starfar hjá sveitarfélagi, leigufélagi, opinberri stofnun eða einkarekinni fasteignastýringu.
Lykilatriði vefkynningarinnar
Þú færð innsýn í hvernig þrívíddarskönnun getur leyst algengar áskoranir í fasteignarekstri og fært okkur ítarleg og uppfærð gögn fyrir rekstur, rýmisstýringu og skjölun gagna.
Einnig skoðum við hvernig skönnun nýtist bæði hjá opinberum og einkareknum aðilum og hvernig hægt er að nýta þrívíddarskönnun – með núverandi FRU/FM-lausnum.
Dagskrá:
- Velkomin – af hverju skipta byggingargögn máli?
Stutt kynning á efninu og afleiðingum ónákvæmra eða ófullnægjandi gagna. - Helstu áskoranir í fasteignarekstri
Ónákvæm skjölun, óvissa um fermetratölur og handvirkar mælingar – og hvað þær kosta. - Hvað er þrívíddarskönnun?
Í stuttu máli: frá raunverulegri byggingu til nákvæms stafræns líkans með myndum, mælingum og rýmisupplýsingum. Stafrænar tvinnanir (Digital Twins), afritun á raunheimum. - Frá skönnun til betri rekstrar
Hvernig hægt er að nýta gögnin til reksturs, rýmisstýringar, útboða og fasteignamats. - Dæmi úr raunveruleikanum
Sjáðu hvernig skönnun sparar tíma, dregur úr villum og styrkir ákvarðanatöku. - Samantekt og spurningar
Hvenær er skönnun rétta lausnin – og hvernig byrjar maður að nota lausnina?
Skráðu þig hér
Fyrir hvern er vefkynningin?
Vefkynningin er ætluð þeim sem vinna við rekstur, viðhald eða skráningu og utan um hald fasteigna – hvort sem það er innan sveitarfélaga, ríkisstofnana, leigufélaga eða hjá einkareknum og opinberum aðilum sem halda utan um eigin fasteignir.
Þú þarft ekki sérstakt FM-kerfi til að fá ávinning af þrívíddarskönnun – hún bætir grunninn að rekstri, skipulagi og ákvarðanatöku.
Skráðu þig og kynntu þér hvernig skönnun eykur yfirsýn, skilvirkni og gagnagæði í rekstri.
