Hvernig Reykjanesbær brúar bilið milli framkvæmda og reksturs með eignaumsjónarkerfi
Hvernig er hægt að einfalda umsjón með byggingum sveitarfélagsins, halda yfirsýn yfir verkefni og sameina allt á einum stað?
🗓️ Dagsetning: 26. nóvember 2026
⏱️ Tími: 10:00–11:00 (þar af 15 mín. fyrir spurningar)
Stafrænt eignaumsjónarkerfi í framkvæmd
Umsjón með byggingum sveitarfélaga fylgja margvíslegar áskoranir. Það þarf að skipuleggja viðhaldsverkefni, samhæfa byggingarframkvæmdir og halda utan um mikið magn upplýsinga. Þegar ólík teymi vinna í ólíkum kerfum getur líka verið erfitt að fá heildarmyndina.
Hvernig er þá hægt að sameina allt og gera daglegt starf aðeins auðveldara?
Það er einmitt það sem við skoðum í þessari vefkynningu. Hér mun Reykjanesbær, eitt stærsta og ört vaxandi sveitarfélag landsins, segja frá vegferð sinni við innleiðingu á samtengdu og stafrænu eignaumsjónarkerfi.
Þú færð að heyra hvers vegna sveitarfélagið valdi að vinna með NTI, hvernig innleiðingin gekk fyrir sig og hvernig lausnirnar eru nýttar í dag.
Við sýnum einnig hvernig NTI FM, NTI BIDCO og Autodesk Forma vinna saman og fylgja byggingunni í gegnum allan lífsferilinn, frá skipulagi og framkvæmdum til daglegs reksturs.
Vertu með þegar Reykjanesbær deilir reynslu sinni af NTI FM, NTI BIDCO og Autodesk Forma, allt frá vali á réttu lausnunum til innleiðingar þeirra í daglegt starf.
Lykilatriði vefkynningarinnar
Á vefkynningunni förum við yfir reynslu Reykjanesbæjar og skoðum nánar:
- Áskoranirnar: Hvað var ekki að virka áður og hvað varð til þess að sveitarfélagið leitaði að nýju eignaumsjónarkerfi?
- Af hverju lausnir NTI urðu fyrir valinu: Hvers vegna völdu þau NTI FM, NTI BIDCO og Autodesk Forma og hvernig vinna lausnirnar saman?
- Innleiðingarferlið: Hvernig hófst vinnan, hvað lærðu þau á leiðinni og hvernig var að innleiða lausnirnar í daglegt starf?
- Tenging verkefna og daglegs reksturs: Hvernig má auðvelda upplýsingamiðlun milli fasteignastjóra, hönnuða og verktaka og tryggja að mikilvæg gögn glatist ekki á milli framkvæmda og reksturs?
- Árangurinn hingað til: Hvað hefur breyst og hvaða ávinning sjá þau í dag?
Þú færð tækifæri til að heyra beint frá viðskiptavininum, sjá hvernig lausnirnar eru notaðar daglega og spyrja spurninga.
Skráðu þig hér
Fyrirlesarar
Magnþór Ragnarsson- Verkefnastjóri í eignaumsjón – Reykjanesbær
Magnþór rennir í gegnum innleiðingarferlið Reykjanesbæjar. Hann fer meðal annars yfir hvers vegna lausnir NTI urðu fyrir valinu, hvernig innleiðingin gekk og hver reynslan hefur verið hingað til.
Guðmundur Jónsson – Ráðgjafi mannvirkjasvið - NTI
Guðmundur fer yfir lausnirnar að baki verkefninu og sýnir hvernig NTI FM, NTI BIDCO og Autodesk Forma geta tengt byggingarframkvæmdir við eignaumsjónarkerfi.
Fyrir hvern er vefkynningin?
Vefkynningin er ætluð öllum sem starfa við byggingar, eignarekstur og umsjón eða stafræna þróun hjá sveitarfélögum og í opinbera geiranum. Hún hentar meðal annars rekstrarstjórum fasteigna, fasteignastjórum, tæknistjórum, verkefnastjórum og þeim sem leiða stafræna umbreytingu. Þú færð hagnýta innsýn í hvernig sveitarfélag tekst á við áskoranir sem þú kannast mögulega við.
Vertu með og fáðu innblástur frá reynslu Reykjanesbæjar af stafrænu eignaumsjónarkerfi.
Svona tekur þú þátt í vefkynningunni
Til að taka þátt í vefkynningunni notar þú hlekkinn sem þú færð í tölvupósti eftir skráningu. Ef þú kemst ekki, skaltu samt skrá þig. Við sendum þér hlekk eftir vefkynninguna svo þú getir horft á hana þegar þér hentar.
Hvað er NTI FM?
NTI FM er framtíðartryggt eignaumsjónarkerfi sem veitir þér fulla stjórn á eignaumsjón, allt frá daglegum þjónustuverkum til langtímaviðhalds og stefnumótandi fjárhagsáætlana. Kerfið sameinar öll lykilverkfærin á einum stað: verkefnastjórnun, viðhaldsáætlanir, samþættingu við ERP-kerfi og farsímaaðgang. Þannig dregur það úr kostnaði, lengir líftíma bygginga og bætir samvinnu milli teyma.
Sölustjóri NTI á Íslandi
Reykjavík - Ísland
+354 537 1945
