Skip to main content Search

Chaos Enscape

Enscape er viðbót fyrir rauntímamyndsetningu og sýndarveruleika sem er samþætt Autodesk Revit.

Tryggðu þér Enscape hér

 

Framúrskarandi gæði með raunsærri þrívíddarmyndsetningu

Fyrir Revit-, Rhino- og SketchUp-notendur

Með einum smelli geturðu opnað Enscape og skoðað verkefnið þitt í raunsærri þrívídd á örfáum sekúndum – án þess að flytja út skrár eða hlaða þeim upp í skýið. Allar breytingar sem þú gerir í Autodesk Revit birtast samstundis í Enscape og eru tilbúnar til yfirferðar.

Kannaðu mismunandi útfærslur á hönnuninni og kynntu verkefnið á skýran og áhrifaríkan hátt. Ef viðskiptavinur óskar eftir breytingum uppfærast þær samstundis í Enscape – einnig í sýndarveruleika (VR). Þú getur jafnframt búið til sjálfstæða Enscape-skrá og deilt henni með viðskiptavinum eða samstarfsfólki til að auðvelda kynningar og yfirferð verkefna.

Enscape veitir þér öflug verkfæri til að búa til myndir, hreyfimyndir og gagnvirka framsetningu verkefna. Gakktu um verkefnið, skoðaðu það í rauntíma og kynntu hugmyndir þínar á áhrifaríkan hátt.

 

4 ástæður til að velja Enscape

light-structure-red-100.png

Viðbót fyrir Autodesk Revit og SketchUp

Enscape er viðbót fyrir Revit, Rhino og SketchUp sem gerir þér kleift að vinna með verkefnið þitt í rauntíma og sjá hvert smáatriði um leið og hönnunin þróast.

data-sync-red-100.png

Gagnvirkt samstarf og miðlun

Skoðaðu þrívíddarlíkanið þitt samstundis í Enscape á meðan unnið er í Revit eða SketchUp. Breytingar á hönnuninni birtast strax, sem auðveldar samstarf og yfirferð verkefna. Deildu þrívíddarmyndum með samstarfsfólki og viðskiptavinum.

cloud-100-red.png

Raunsæ myndsetning í hæsta gæðaflokki

Skoðaðu þrívíddarlíkanið í raunsærri lýsingu – frá dagsbirtu til kvöldbirtu. Enscape sýnir verkefnið með efnum, innréttingum og öðrum mikilvægum smáatriðum þannig að þú færð skýra mynd af endanlegri útkomu.

drawing-red-100.png 

Aukin skilvirkni í hönnunarferlinu

Nýttu gagnvirka eiginleika Enscape til að einfalda verkferla og auka skilvirkni. Með Enscape sem viðbót fyrir Revit eða SketchUp geturðu búið til raunsæja þrívíddarmyndsetningu af verkefninu á einfaldan og fljótlegan hátt.

Helstu eiginleikar

  • Myndsetning í rauntíma: Fáðu sjónræna endurgjöf samstundis beint í CAD- eða BIM-forritinu þínu.
  • Skilvirkari verkferlar með einum smelli: Samstilltu Enscape við Revit, SketchUp og Rhino svo breytingar uppfærist samstundis.
  • Ljósmyndaraunsæ myndsetning: Búðu til raunsæja myndsetningu með nákvæmri lýsingu, raunverulegum efnum og miklum smáatriðum.
  • Stuðningur við sýndarveruleika (VR): Kynntu verkefnið og skoðaðu hönnunina í sýndarveruleika í fullum mælikvarða.
  • AI Image Enhancer og AI Upscaler*: Bættu smáatriði og auktu upplausn mynda án þess að þurfa að búa til nýja myndsetningu. Gervigreindarverkfærin geta meðal annars bætt framsetningu fólks og gróðurs án þess að breyta arkitektúr, innréttingum eða öðrum mikilvægum þáttum hönnunarinnar.

*AI Image Enhancer og AI Upscaler eru gervigreindareiginleikar sem nota Chaos Credits. Chaos Credits fylgja öllum Chaos-vörum og hægt er að kaupa viðbótarinneignir eftir þörfum. Lestu meira um Chaos Credits.

Hverjir geta nýtt sér Enscape?

Chaos Enscape hentar sérstaklega vel fyrir:

  • Arkitekta
  • Hönnuði
  • Sérfræðinga í myndsetningu

sem vilja skapa áhrifaríka sjónræna framsetningu og kynna verkefni á sannfærandi hátt strax á fyrstu stigum hönnunarferlisins.

Með Enscape geturðu nýtt sýndarveruleika (VR) til að veita viðskiptavinum raunsæja upplifun af verkefninu áður en það verður að veruleika. Gerðu verkefnakynningar áhrifaríkari og gefðu viðskiptavinum og samstarfsfólki tækifæri til að upplifa hönnunina í stað þess að skoða aðeins teikningar.

Með sýndarveruleika geturðu kynnt verkefnið í fullum mælikvarða og skapað betri grunn fyrir ákvarðanatöku.

Hvaða Enscape-lausn hentar þínum þörfum?

Enscape Solo

Enscape Premium

  • Fáanlegt sem leyfi fyrir einn nafngreindan notanda eða sem fljótandi leyfi.
  • Stuðningur innifalinn
  • Cosmos Assets Premium efnissafn
  • Chaos Veras
  • 500 Chaos Credits

 

Enscape Collection

  • Fáanlegt sem leyfi fyrir einn nafngreindan notanda eða sem fljótandi leyfi
  • Stuðningur innifalinn
  • Cosmos Assets Collection efnissafn
  • Chaos Veras
  • Chaos Envision
  • Chaos Impact
  • 1.500 Chaos Credits

chaos-platinum-partner-450x160.jpg

Sem Chaos Platinum Partner hjálpar NTI þér að fá sem mest út úr Chaos-lausnunum. Með öflugri tækni fyrir myndsetningu og sjóngervingu geturðu skapað áhrifaríka sjónræna framsetningu, eflt skapandi samstarf og komið hugmyndum hraðar í framkvæmd.

 

Af hverju að kaupa Chaos Enscape hjá NTI?

  • NTI er einn stærsti Chaos samstarfsaðili í Evrópu og hefur Platinum Partner-vottun. Við bjóðum upp á alla Chaos-vörulínuna og hjálpum fyrirtækjum að fá sem mest út úr hugbúnaðinum sínum.

     

  • Sérfræðingar okkar búa yfir víðtækri reynslu á sviði byggingar-, mannvirkja- og tæknigreina og þekkja vel þær áskoranir og þarfir sem einkenna ólík fagasvið.

     

  • Við styðjum þig í gegnum allt ferlið – allt frá ráðgjöf, leyfismálum og innleiðingu til þjálfunar, tækniaðstoðar og áframhaldandi ráðgjafar.

 

Ókeypis kynning

Bókaðu ókeypis kynningu með sérfræðingum okkar og sjáðu hvernig Enscape getur styrkt hönnunarferlið, bætt verkferla og gert sjónræna framsetningu verkefna enn áhrifaríkari. Hafðu samband við okkur og við finnum tíma sem hentar þér.

Forvitin/n að vita meira?

Spurningar?

Hafðu endilega samband við okkur með spurningar um Enscape

Árni Guðmundur Guðmundsson

Sölustjóri NTI á Íslandi

Reykjavík - Ísland

+354 537 1945