Chaos Veras – með Nano Banana Pro
Leiðandi AI-myndsetningarlausn fyrir arkitekta sem fellur náttúrulega inn í verkferlana þína.
Fá tilboðNýir möguleikar með Veras 4.0
Veras 4.0 er nú byggt á Google Nano Banana Pro og skilar betri myndgæðum, betra samræmi við textalýsingar (prompts) og nýjum leiðum til að myndsetja hönnunina þína. Veras skilur hönnunaráformin þín og styður skapandi ferlið með eiginleikum á borð við Geometry Override, Image-to-video og möguleikanum á að prófa mismunandi sjónræna stíla í rauntíma.
Hvað aðgreinir Veras frá öðrum gervigreindarverkfærum til myndsetningar?
Þróað fyrir verkferla í byggingar- og hönnunargeiranum
Ólíkt almennum AI-verkfærum er Veras þróað sérstaklega fyrir verkferla í byggingar-, mannvirkja- og hönnunargeiranum. Lausnin býður upp á eiginleika sem eru sniðnir að þörfum arkitekta og hönnuða.
Efnis- og hlutaval í þrívíddarlíkani
Með Veras geturðu valið efni og hluti beint í þrívíddarlíkaninu og búið til myndsetningu út frá því sem þú velur. Þannig geturðu unnið með afmarkaða hluta líkansins af meiri nákvæmni.
Samþætting við BIM
Veras vinnur beint með forritum á borð við Revit, SketchUp og Rhino og nýtir núverandi þrívíddarlíkön án þess að þurfa útflutning eða frekari vinnslu.
Samþætting við Enscape
Veras nýtir raunverulega þrívíddargeometríu og myndavélarstillingar úr Enscape, þannig að myndsetningin byggist á raunverulegu líkaninu en ekki eingöngu á textalýsingum (prompts). Það skilar nákvæmari og markvissari niðurstöðum sem endurspegla hönnun og samhengi verkefnisins.
*Til að nota ákveðna eiginleika í Veras þarf Chaos Credits. Veras inniheldur mánaðarlega inneign sem endurnýjast sjálfkrafa og hægt er að kaupa viðbótarinneignir eftir þörfum. Hafðu samband við okkur ef þú hefur spurningar um Chaos Credits. Lestu meira um Chaos Credits.
Hverjir geta nýtt sér Veras?
Chaos Veras hentar sérstaklega vel fyrir:
- Arkitekta
- Innanhússhönnuði
- Skipulagsfræðinga
sem vilja þróa og myndgera hugmyndir hratt án þess að bíða eftir hefðbundinni myndsetningu.
Veras er myndsetningarverkfæri sem nýtir gervigreind til að hjálpa arkitektum og hönnuðum að þróa og útfæra sjónrænar hugmyndir á fljótlegan hátt beint í hönnunarforritum eins og Revit, Rhino, SketchUp og fleirum.
Hluti af Enscape, V-Ray og Corona
Veras er nú innifalið í öllum útgáfum af Enscape, V-Ray, og Corona. en er einnig fáanlegt sem sjálfstæð lausn. Hafðu samband við okkur ef þú vilt fá ráðgjöf um hvaða vörur og áskriftarleiðir henta best fyrir þitt teymi.
Kynning, leyfi og verð fyrir Veras
Ertu að íhuga Chaos Veras og vilt fá upplýsingar um verð eða bóka ókeypis kynningu?
Verð
Verðið fer eftir samningstíma og fjölda leyfa. Verð geta einnig breyst í samræmi við verðbreytingar frá Chaos.
Veras er innifalið í öllum útgáfum af Enscape, V-Ray og Corona, en er einnig fáanlegt sem sjálfstæð lausn.
Ókeypis kynning
Bókaðu ókeypis kynningu með sérfræðingum okkar í myndsetningu og sjáðu hvernig Veras getur hjálpað þér að þróa hugmyndir og skapa áhrifaríka myndsetningu beint í núverandi hönnunarferli. Hafðu samband við okkur og við finnum tíma sem hentar þér.
Af hverju að kaupa Chaos Veras hjá NTI?
-
NTI er einn stærsti Chaos samstarfsaðili í Evrópu og hefur Platinum Partner-vottun. Við bjóðum upp á alla Chaos-vörulínuna og hjálpum fyrirtækjum að fá sem mest út úr hugbúnaðinum sínum.
-
Sérfræðingar okkar búa yfir víðtækri reynslu á sviði byggingar-, hönnunar- og tæknigreina og þekkja vel þær áskoranir og þarfir sem einkenna ólík atvinnusvið.
-
Við styðjum þig í gegnum allt ferlið – allt frá ráðgjöf, leyfismálum og innleiðingu til þjálfunar, tækniaðstoðar og áframhaldandi ráðgjafar.
-
Hafðu samband við okkur ef þú vilt fá tilboð í Veras sem sjálfstæða lausn eða ráðgjöf um hvaða leyfisleið hentar þínum þörfum.
Hafðu samband við okkur
Sölustjóri NTI á Íslandi
Reykjavík - Ísland
+354 537 1945

