Ljósmyndaraunsæ myndsetning á einfaldan hátt
Chaos Corona er eina myndsetningarlausnin sem var þróuð sérstaklega fyrir hágæða sjónræna framsetningu í arkitektúr. Einbeittu þér að hönnuninni í stað tækninnar og búðu til ljósmyndaraunsæja myndsetningu á einfaldari hátt en með öðrum myndsetningarlausnum.
Ástæður til að velja Corona
Einfalt í notkun
Corona er þekkt fyrir að vera einstaklega auðvelt í notkun. Uppsetning myndsetningar er jafn einföld og að smella á Render. Flestir nýir notendur ná góðum tökum á Corona á einum degi og verða fljótt hrifnir af því.
Framúrskarandi myndgæði
Corona skilar stöðugum og áreiðanlegum niðurstöðum í hæsta gæðaflokki. Þú færð raunsæja lýsingu, raunveruleg efni og háþróuð ljósspil strax frá upphafi.
Efni tilbúið til notkunar
Corona kemur með öflugu safni efna, umhverfa, líkana og annarra eigna sem gera þér kleift að byggja upp og myndsetja verkefni á fljótlegan hátt. Efnissafnið er stöðugt uppfært með nýju efni.
Skilvirkari verkferlar
Corona inniheldur fjölbreytt verkfæri sem gera myndsetningarvinnuna hraðari og skilvirkari. Þannig færðu meiri tíma til að einbeita þér að hönnuninni og minni tíma í tæknilegar stillingar.
Samþætting við helstu hönnunarforrit
Corona samþættist á einfaldan hátt við Autodesk 3ds Max og Maxon Cinema 4D og verður eðlilegur hluti af daglegum verkferlum þínum.
Hluti af Chaos-vistkerfinu
Sem Corona-notandi færðu aðgang að hinu margverðlaunaða Chaos-vistkerfi. Sameinaðu Corona og önnur Chaos-verkfæri til að skapa samfellda stafræna verkferla með lausnum sem vinna hnökralaust saman.
- Myndsetning: Öflug CPU-myndsetning Corona skilar ljósmyndaraunsærri myndsetningu með lágmarks fyrirhöfn. Hugbúnaðurinn nýtir sjálfkrafa vinnslugetu tölvunnar þar sem hennar er mest þörf til að hámarka afköst án þess að skerða myndgæði.
- Lýsing: Corona var meðal fyrstu myndsetningarlausna til að bjóða upp á háþróað himinlíkan sem gerir þér kleift að skapa raunsæ birtuskilyrði yfir allan sólarhringinn – frá sólarupprás og rökkri til bjarts dagsljóss. Með landfræðilega nákvæmu næturhiminslíkani geturðu einnig myndsett tunglið, stjörnurnar og Vetrarbrautina út frá raunverulegum staðsetningargögnum.
- Gaussian Splats: Myndsettu stór og nákvæm umhverfi með mikilli smáatriðaútfærslu og raunsæjum endurkasti og ljósbroti án þess að skerða afköst.
- Efni og áferðir: Skapaðu raunveruleg efni með sérhæfðum verkfærum fyrir meðal annars húð og hár. Búðu til raunsæ textílefni á borð við bómull, ull og önnur ofin efni án þess að nota texture maps.
- AI Material Generator: Breyttu ljósmyndum í raunveruleg PBR-efni (Physically Based Rendering). Gervigreindin býr sjálfkrafa til öll nauðsynleg efniskort svo efnin séu tilbúin til notkunar í myndsetningum þínum.
- AI Image Enhancer og AI Upscaler*: Bættu smáatriði og auktu upplausn mynda án þess að þurfa að búa til nýja myndsetningu. Gervigreindarverkfærin geta meðal annars bætt framsetningu fólks og gróðurs án þess að breyta lykilþáttum hönnunarinnar.
*AI Image Enhancer og AI Upscaler eru gervigreindareiginleikar sem nota Chaos Credits. Chaos Credits fylgja öllum Chaos-vörum og hægt er að kaupa viðbótarinneignir eftir þörfum. Lestu meira um Chaos Credits..
Hverjir geta nýtt sér Corona?
Chaos Corona hentar sérstaklega vel fyrir:
- Arkitekta
- Sérfræðinga í myndsetningu
- Sjálfstætt starfandi sérfræðinga og smærri hönnunarstofur
sem vilja notendavæna myndsetningarlausn án þess að gefa eftir í gæðum.
Corona er notendavæn myndsetningarvél sem er þróuð sérstaklega fyrir sjónræna framsetningu í arkitektúr. Viðmótið og eiginleikarnir eru hannaðir til að styðja við myndsetningarvinnu og gera það auðvelt að skapa ljósmyndaraunsæjar myndsetningar.
Corona Solo
- Leyfi fyrir einn nafngreindan notanda
- Allar Corona samþættingar innifaldar
- Stuðningur innifalinn
- Chaos Cosmos efnissafn (þ.m.t. Chaos Scans)
- Chaos Veras
- 100 Chaos Credits
Corona Premium
- Fljótandi leyfi sem hægt er að nota á hvaða tölvu sem er
- Allar Corona samþættingar innifaldar
- Stuðningur innifalinn
- Chaos Cosmos efnissafn (þ.m.t. Chaos Scans)
- Chaos Veras
- Chaos Phoenix
- Chaos Player
- 500 Chaos Credits
Corona Collection
- Fáanlegt sem leyfi fyrir einn nafngreindan notanda eða sem fljótandi leyfi
- Allar Corona samþættingar innifaldar
- Stuðningur innifalinn
- Chaos Cosmos efnissafn (þ.m.t. Chaos Scans)
- Chaos Veras
- Chaos Phoenix
- Chaos Player
- Chaos Vantage
- Chaos Anima
- 1500 Chaos Credits
Viltu fá að vita meira?
Ertu að skoða Chaos Corona og vilt fá nánari upplýsingar um leyfi, verð eða bóka ókeypis kynningu?
Verð
Verð fer eftir samningstíma og fjölda leyfa. Verð geta einnig breyst í samræmi við verðbreytingar frá Chaos.
Hafðu samband við okkur til að fá verðtilboð sem er sniðið að þínum þörfum.
Ókeypis kynning
Bókaðu ókeypis kynningu með sérfræðingum okkar og sjáðu hvernig Corona getur hjálpað þér að skapa ljósmyndaraunsæja myndsetningu með einföldum og notendavænum verkferlum. Hafðu samband við okkur og við finnum tíma sem hentar þér.
Af hverju að kaupa Chaos Corona hjá NTI?
- NTI er einn stærsti Chaos-samstarfsaðili í Evrópu og hefur Platinum Partner-vottun. Við bjóðum upp á alla Chaos-vörulínuna og hjálpum fyrirtækjum að fá sem mest út úr hugbúnaðinum sínum.
- Sérfræðingar okkar búa yfir víðtækri reynslu á sviði myndsetningar, hönnunar og stafrænna verkferla og þekkja vel þær áskoranir og þarfir sem einkenna ólík atvinnusvið.
- Við styðjum þig í gegnum allt ferlið – allt frá ráðgjöf, leyfismálum og innleiðingu til þjálfunar, tækniaðstoðar og áframhaldandi ráðgjafar.
Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um Chaos Corona.
Sölustjóri NTI á Íslandi
Reykjavík - Ísland
+354 537 1945

