Skip to main content Search

Autodesk Flex Token

Sveigjanleg leyfislausn þar sem þú greiðir aðeins fyrir notkunina.

Hafðu samband við sérfræðinga okkar

 

Borgaðu aðeins fyrir það sem þú notar

Með Autodesk Flex geta starfsmenn fengið aðgang að Autodesk hugbúnaði á einfaldan og sveigjanlegan hátt þegar þörf krefur. Lausnin byggir á Flex tokens, þar sem þú greiðir aðeins fyrir þann tíma sem hugbúnaðurinn er í notkun. 

Flex token.png

 

Hentar Autodesk Flex þínu fyrirtæki?

Autodesk Flex hentar sérstaklega vel fyrirtækjum þar sem starfsmenn nota Autodesk hugbúnað aðeins af og til, eða í sjö daga eða færri á mánuði.

Ertu ekki viss um hvort Autodesk Flex henti ykkur? Ef þú getur svarað við einni eða fleiri af spurningunum hér fyrir neðan gæti Autodesk Flex verið lausnin sem þú ert að leita að.

  • Eru starfsmenn sem nota ákveðinn Autodesk hugbúnað aðeins í sjö daga eða færri á mánuði?
  • Ertu að greiða fyrir leyfi sem eru aðeins notuð af og til?
  • Er erfitt að bæta nýjum notendum við verkefni sem breytast hratt?
  • Þurfa einstakir starfsmenn aðeins aðgang að ákveðnum Autodesk forritum á tilteknum stigum hönnunarferlisins?
  • Sleppir þú því að nota sérhæfðan hugbúnað í ákveðnum verkefnaáföngum vegna kostnaðar?

 

Kostir Autodesk Flex

scale-red-100.png

Borgaðu ekki fyrir meira en þú þarft

user-analytics-data-red-100.png

Skýrt yfirlit yfir notkun og token-eyðslu

management-red-100.png

Gefðu réttum starfsmönnum aðgang að þeim Autodesk forritum sem þeir þurfa

team-consultancy-red-100.png

Einfalt og sveigjanlegt samstarf með samstarfsaðilum og ráðgjöfum

Hvernig virkar Autodesk Flex?

Þegar þú opnar Autodesk forrit með Autodesk Flex geturðu notað það í 24 klukkustundir. Ef forritið er enn opið eftir þann tíma hefst nýtt 24 klukkustunda tímabil.

Skref 1

Kauptu þann fjölda Flex tokens sem fyrirtækið þitt þarf.

Skef 2

Úthlutaðu einum eða fleiri notendum Autodesk Flex í Autodesk Account.

Skef 3

Notaðu Autodesk forritið í allt að 24 klukkustundir með hverju Flex token tímabili. Lokaðu forritinu þegar notkun lýkur.

Skref 4

Fylgstu með notkun Flex tokens í Autodesk Account.

Berðu saman kosti Autodesk Flex og áskriftarleiða 

Autodesk Flex hentar vel fyrir notendur sem nota Autodesk hugbúnað af og til, en áskriftarleiðir henta betur þeim sem nota hugbúnaðinn reglulega. Hér fyrir neðan geturðu borið saman kosti hvorrar lausnar og séð hvor hentar þínum þörfum best.

Sveigjanleg leyfislausn með Autodesk Flex

Autodesk Flex hentar vel þegar þörfin fyrir Autodesk hugbúnað er breytileg eða tilfallandi. Með Flex kaupir þú Flex tokens sem veita aðgang að fjölbreyttu úrvali Autodesk forrita – án þess að skuldbinda þig til hefðbundinnar áskriftar.

  • Kauptu Flex tokens og fáðu aðgang að fjölbreyttu úrvali Autodesk forrita.
  • Flex tokens veita aðgang að Autodesk forritum í 24 klukkustundir. Fjöldi tokens fer eftir því hvaða forrit er notað.
  • Úthlutaðu Autodesk Flex til eins margra notenda og þörf er á og stjórnaðu hvaða forrit þeir hafa aðgang að.
  • Aðlagaðu þig fljótt að breyttum verkefnaþörfum án þess að kaupa fleiri áskriftir en þörf er á.
  • Dragðu úr óþarfa kostnaði með því að greiða aðeins fyrir þá notkun sem á sér stað.

Áskrift fyrir reglulega notkun

Áskrift hentar fyrirtækjum og notendum sem þurfa stöðugan aðgang að tilteknum Autodesk forritum. Hún veitir samfelldan aðgang að hugbúnaðinum og fyrirsjáanlegan leyfiskostnað.

  • Kauptu áskrift að því Autodesk forriti sem þú þarft.
  • Notaðu forritið eins mikið og þú vilt á meðan áskriftin er í gildi.
  • Úthlutaðu hverri áskrift til ákveðins notanda og færðu hana á annan notanda þegar þörf krefur.
  • Tryggðu að starfsmenn hafi alltaf aðgang að þeim Autodesk forritum sem þeir þurfa.
  • Skipuleggðu leyfiskostnað með meiri fyrirsjáanleika.

Horfðu á myndbandið og kynntu þér Autodesk Flex nánar:

Flex tokens: Hversu mörg Flex tokens þarftu?

Þú getur notað Flex tokens með yfir 30 Autodesk forritum, til dæmis AutoCAD (7 tokens), Revit (10 tokens), Inventor Professional (8 tokens) og Fusion 360 (2 tokens). Lágmarkskaup eru 100 Flex tokens..

 

    • Advance Steel 8 tokens
    • AutoCAD 7 tokens
    • AutoCAD Architecture 7 tokens
    • AutoCAD Electrical 7 tokens
    • AutoCAD for Mac 7 tokens
    • AutoCAD Map 3D 7 tokens
    • AutoCAD Mechanical 7 tokens
    • AutoCAD MEP 7 tokens
    • AutoCAD Plant 3D 7 tokens
    • AutoCAD Raster Design 4 tokens
    • Civil 3D 9 tokens
    • Fabrication CADmep 4 tokens
    • FeatureCAM Ultimate 30 tokens
    • Flame 18 tokens
    • FormIt Pro 1 tokens
    • Fusion 360 2 tokens
    • HSMWorks Ultimate 16 tokens
    • InfraWorks 7 tokens
    • Inventor Professional 8 tokens
    • Inventor CAM Ultimate 16 tokens
    • Inventor Nastran 10 tokens
    • MotionBuilder 6 tokens
    • Mudbox 1 tokens
    • Navisworks Manage 9 tokens
    • Netfabb Ultimate 55 tokens
    • PowerInspect Ultimate 26 tokens
    • PowerMill Ultimate 47 tokens
    • PowerShape Ultimate 17 tokens
    • Project Explorer til Civil 3D 1 tokens
    • ReCap Pro 1 tokens
    • Revit Architecture 10 tokens
    • Robot Structural Analysis Professional 11 tokens
    • Structural Bridge Design 7 tokens
    • Vault Professional 3 tokens
    • Vehicle Tracking 4 tokens
 

 

Ertu með spurningar um Autodesk Flex?

Hafðu samband við okkur!


Við hjálpum þér að meta hvort Autodesk Flex henti þínu fyrirtæki. Saman förum við yfir hvernig hugbúnaðurinn er notaður hjá ykkur og finnum þá leyfislausn sem hentar best.

Hafðu samband við okkur til að fá ítarlega yfirferð á Autodesk Flex og ráðgjöf um hvernig hægt er að hámarka nýtingu leyfa og draga úr leyfiskostnaði.

Þú getur einnig haft samband beint við tengilið þinn hjá NTI.

 

Forvitin/n að vita meira?

Hafðu samband

Árni Guðmundur Guðmundsson

Sölustjóri NTI á Íslandi

Reykjavík - Ísland

+354 537 1945