Frá hönnun yfir í rekstur: Fáðu meiri upplýsingar úr gögnum sem liggja í Autodesk Forma yfir í rekstur
🗓️ Dagsetning: 8. september 2026
⏱️ Tími: Kl. 09.00-10.00
Hvernig tryggir þú að verðmæt verkefnagögn glatist ekki þegar byggingarverkefni færist yfir í rekstur?
Margir verkkaupar upplifa að verkefna- og rekstrarteymi vinni í sitthvorum kerfum og eftir ólíkum verkferlum. Það getur leitt til þess að gögn, skjöl og þekking fylgi ekki með í gegnum líftíma byggingarinnar og að rekstrarteymið þurfi oft að byrja upp á nýtt við að safna saman upplýsingum um bygginguna.
Þannig þarf það ekki að vera.
Á þessari vefkynningu sýnum við hvernig Autodesk Forma getur tengt saman verkefni og rekstur og stuðlað að samfelldu stafrænu ferli þar sem gögn eru endurnýtt í stað þess að glatast.
Þú færð innsýn í hvernig nútímaleg nálgun við stafræn skil getur skapað meiri verðmæti, bæði fyrir verkefnið sjálft og reksturinn sem tekur við. Þegar verkefni og rekstur tengjast betur eru gögnin ekki aðeins afhent heldur eru þau nýtt áfram. Það skapar betri grunn fyrir rekstur, viðhald og framtíðarverkefni.
Hvað færðu út úr vefkynningunni?
Við sýnum meðal annars hvernig þú getur:
- skapað samfellt gagnaflæði frá verkefni yfir í rekstur – og aftur til baka
- endurnýtt eignagögn og byggingargögn í gegnum allan líftíma byggingarinnar
- einfaldað ferlið við stafræn skil og tryggt að gögnin nýtist betur áfram
- tryggt að skjöl og upplýsingar nýtist í rekstri í stað þess að gleymast í möppu
- tengt betur saman verkefna- og rekstrarteymi þannig að bæði vinni út frá sömu gögnum
Þú færð jafnframt kynningu á Autodesk Forma og sérð hvernig það getur sameinað verkefnagögn, skjöl og ferla tengda eigna- og fasteignastjórnun í eina samfellda lausn.
Fyrir hverja?Vefkynningin hentar meðal annars:
Hvort sem þú notar Autodesk Forma eða vilt einfaldlega kynna þér möguleikana á skilvirkari stafrænum skilum færðu á vefkynningunni hagnýta innsýn og hugmyndir að því hvernig hægt er að tengja verkefni og rekstur betur saman með upplýsingar rík gögnin að leiðarljósi. |
Skráðu þig hér
Hafðu samband við okkur í dag
Hafðu samband og fáðu upplýsingar um möguleikana með Autodesk Forma og NTI FM.
Sölustjóri NTI á Íslandi
Reykjavík - Ísland
+354 537 1945
