Skip to main content Search

Trimble SketchUp – frá hugmynd að skýrri þrívíddarframsetningu

Búðu til líkön, kynningar og gögn sem auðvelda ákvarðanatöku og gera verkefnin skýrari.

Hafðu samband

Hannaðu, sýndu og miðlaðu hugmyndum þínum í þrívídd

SketchUp hjálpar þér að fara hratt frá hugmynd að skýru 3D líkani, þrívíddarframsetningu eða kynningarefni. Hvort sem þú vinnur við arkitektúr, byggingar, innanhússhönnun, landslagshönnun eða tæknilega hönnun auðveldar SketchUp þér að skoða mismunandi lausnir, miðla hugmyndum og skapa sameiginlegan skilning á verkefninu.

Hjá NTI færðu aðstoð við að finna þá SketchUp lausn sem hentar þínum þörfum, allt frá sveigjanlegri 3D hönnun í vafra og á iPad yfir í ítarlegra vinnuflæði með punktskýjum og innflutningi úr Revit.

Kostir SketchUp:

  • Flýtir fyrir hönnunarferlinu með því að auðvelda þér að móta, skoða og þróa hugmyndir beint í þrívídd.
  • Bætir samskipti með skýrri þrívíddarframsetningu sem auðveldar viðskiptavinum, verkefnahópum og þeim sem taka ákvarðanir að öðlast sameiginlegan skilning á verkefninu.
  • Auðveldar ákvarðanatöku með því að tengja 3D líkön við raunverulegt umhverfi, efni og upplýsingar um verkefnið.
  • Einfaldar gerð gagna og kynningarefnis með verkfærum til að útbúa skýrar 2D teikningar út frá 3D líkönum.
  • Auðveldar samstarf með einfaldri deilingu verkefna og líkana í skýinu.

  • Býður upp á sveigjanlegt vinnuflæði með aðgangi að líkönum, viðbótum og ítarlegri eiginleikum á borð við punktský og innflutning úr Revit.

Fyrir hverja er SketchUp?

SketchUp hentar fagfólki sem þarf að hanna, sýna og miðla hugmyndum og lausnum í þrívídd. SketchUp er meðal annars notað af:

  • Arkitektum og arkitektastofum
  • Innanhússarkitektum og hönnuðum
  • Byggingar- og fasteignafyrirtækjum
  • Landslagsarkitektum
  • Tækniráðgjöfum og verkefnahópum
  • VDC- og BIM-teymum sem vinna með þrívíddarframsetningu og samhæfingu.
  • Námsbrautum á sviði arkitektúrs, byggingariðnaðar, hönnunar og verkfræði

SketchUp býður einnig upp á lausnir fyrir vinnu með punktský, sem henta vel fyrir endurbætur og skráningu á núverandi byggingum og umhverfi.

Veldu réttu SketchUp lausnina

SketchUp er í boði í nokkrum útgáfum eftir því hvernig þú vinnur með 3D hönnun, gögn, þrívíddarframsetningu, skönnun og samstarf. Ertu ekki viss um hvaða lausn hentar þér best? Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að finna réttu lausnina.

Hvaða SketchUp lausn hentar þér?

SketchUp er í boði í nokkrum lausnum fyrir mismunandi þarfir í 3D hönnun, þrívíddarframsetningu, gerð gagna og skönnun. Hvaða lausn hentar þér best fer eftir því hvernig þú vinnur, hvers konar verkefni þú sinnir og hvaða eiginleika þú þarft.

Fylltu út formið og við aðstoðum þig við að finna SketchUp lausn sem hentar þínum þörfum og vinnuflæði.

Við getum meðal annars aðstoðað þig við:

  • Ráðgjöf um val á SketchUp lausn
  • Leyfi og áskriftir
  • Greiningu á þörfum út frá þínu vinnuflæði
  • Aðstoð við innleiðingu og notkun
  • Lausnir fyrir þrívíddarframsetningu, skönnun og ítarlegra vinnuflæði við hönnun

Forvitin/n að vita meira?

Ertu með spurningar um SketchUp?

Hafðu samband

Kasper Brünings

Kerfisráðgjafi

+354 415 0522