Skip to main content Search

SketchUp Pro – fagleg 3D hönnun og skipulag

Búðu til skýr 3D líkön, kynningar og verkefnagögn með einföldu og þægilegu verkfæri fyrir arkitekta, hönnuði, byggingarteymi og tækniráðgjafa.

Skoða eiginleika

Af hverju að velja SketchUp Pro?

Mótaðu hugmyndir hraðar

Farðu frá fyrstu hugmynd að skýru 3D líkani með einföldu og þægilegu hönnunarverkfæri. SketchUp Pro auðveldar þér að skoða mismunandi möguleika, prófa lausnir og móta hönnunarhugmyndir á sjónrænan hátt svo þú komist hraðar frá hugmynd að kynningu og ákvarðanatöku.

Miðlaðu verkefninu á skýrari hátt

Sýndu hugmyndirnar þínar í þrívídd svo viðskiptavinir, verkefnahópar og þeir sem taka ákvarðanir fái betri yfirsýn yfir verkefnið. Með SketchUp Pro getur þú búið til skýr líkön og kynningar sem auðvelda umræður um lausnir, öflun endurgjafar og ákvarðanatöku.

Einfaldaðu samstarfið

Deildu líkönum og verkefnagögnum í gegnum Trimble Connect og safnaðu athugasemdum á einfaldan hátt. Með SketchUp Pro er auðveldara að halda verkefnahópnum upplýstum, vinna með rétt gögn og skapa sameiginlegan skilning á verkefninu frá fyrstu hugmynd til lokaútgáfu.

 

Þrívíddarlíkan af innra rými byggingar sem sýnir herbergjaskipan, húsgögn og tengingu milli hæða.

Er SketchUp Pro rétta lausnin fyrir þig?

SketchUp Pro er meðal annars notað af:

  • Arkitektum
  • Hönnuðum
  • Innanhússhönnuðum
  • Byggingarteymum
  • Tækniráðgjöfum

SketchUp Pro hentar þeim sem vilja hanna, útbúa verkefnagögn og kynna verkefni í þrívídd, allt frá fyrstu hugmynd að skýrum teikningum og verkefnagögnum.

Með SketchUp Pro getur þú þróað hugmyndir hratt, prófað mismunandi hönnunarlausnir og kynnt þær á sjónrænan hátt fyrir viðskiptavinum, verkefnahópum og þeim sem taka ákvarðanir. SketchUp Pro sameinar 3D hönnun, gerð verkefnagagna og kynningar í einföldu og skilvirku vinnuflæði.

Helstu eiginleikar SketchUp Pro

SketchUp Pro er hannað fyrir faglegt vinnuflæði þar sem 3D hönnun, gerð verkefnagagna og kynningar vinna saman. Hér eru nokkrir af þeim eiginleikum sem hjálpa þér að fara frá fyrstu hugmynd að skýrum teikningum og verkefnagögnum.

SketchUp for Desktop

icon-list-gear-black.svg

Með SketchUp for Desktop færðu öflugt og einfalt verkfæri fyrir 3D hönnun. Búðu til nákvæm líkön, prófaðu mismunandi hönnunarlausnir og þróaðu verkefnið áfram á sjónrænan hátt, frá fyrstu hugmynd að fullunnum teikningum og verkefnagögnum. Hentar vel fyrir vinnuflæði þar sem nákvæmni, sveigjanleiki og skýr framsetning skipta máli.

LayOut

Með LayOut getur þú unnið áfram með 3D líkönin og útbúið 2D teikningar, verkefnagögn og kynningarefni. Búðu til mismunandi yfirlit, málsetningar og skýringar sem auðvelda þér að kynna verkefnið á skýran hátt fyrir viðskiptavinum, verkefnahópum og öðrum sem koma að verkefninu.

Extension Warehouse

Með Extension Warehouse getur þú aðlagað SketchUp Pro að þínu vinnuflæði með viðbótum sem auka möguleika forritsins. Bættu við verkfærum sem henta þínum þörfum, einfaldaðu endurtekin verkefni og skapaðu sveigjanlegra vinnuflæði fyrir 3D hönnun, þrívíddarframsetningu og skipulag verkefna.

Live Components

Með Live Components getur þú notað íhluti sem hægt er að aðlaga að þörfum verkefnisins í SketchUp líkönunum þínum. Í 3D Warehouse getur þú leitað að íhlutum, aðlagað þá og skoðað þá í þrívídd áður en þú sækir þá og notar í verkefninu.

PreDesign

Með PreDesign færðu hugmyndir og leiðbeiningar um hvernig staðbundið loftslag og umhverfisaðstæður geta haft áhrif á hönnunina. Með því að nota verkfærið snemma í hönnunarferlinu getur þú fundið hentugar lausnir áður en ítarleg 3D hönnun hefst og þannig forðast að eyða tíma í lausnir sem henta ekki aðstæðum verkefnisins.

3D Warehouse

Með 3D Warehouse færðu aðgang að umfangsmiklu safni af tilbúnum 3D líkönum og íhlutum. Þannig getur þú byggt upp líkön hraðar, nýtt tilbúið efni í verkefnin og varið meiri tíma í hönnunina sjálfa.

Algengar spurningar

SketchUp Go er fyrst og fremst hannað fyrir vinnu í vafra og á iPad.

SketchUp Pro inniheldur einnig SketchUp for Desktop og LayOut og hentar því betur fyrir faglega 3D hönnun, gerð verkefnagagna og umfangsmeira vinnuflæði við hönnun.

Já, LayOut er innifalið í SketchUp Pro. Með LayOut getur þú unnið áfram með 3D líkönin og útbúið 2D teikningar, verkefnagögn og kynningarefni sem auðvelda þér að miðla verkefninu á skýran hátt.

Já, SketchUp Pro er hannað fyrir þá sem vinna með 3D hönnun, þrívíddarframsetningu, kynningar og gerð verkefnagagna.

Það er mikið notað af arkitektum, hönnuðum, byggingarteymum, innanhússhönnuðum og tækniráðgjöfum sem þurfa að útbúa skýr líkön og verkefnagögn.

Já, SketchUp Pro inniheldur Trimble Connect þar sem þú getur vistað, deilt og haldið utan um verkefnaskrár í skýinu.
Þannig er auðveldara að vinna með samstarfsfólki, viðskiptavinum og verkefnahópum og hafa líkön og verkefnagögn aðgengileg á meðan á verkefninu stendur.

Já, með SketchUp Pro færðu aðgang að 3D Warehouse og Extension Warehouse.
Í 3D Warehouse finnur þú tilbúin 3D líkön sem hægt er að nota til að byggja upp og þróa verkefni. Í Extension Warehouse finnur þú viðbætur sem hægt er að nota til að aðlaga SketchUp að mismunandi vinnuflæði og þörfum.

Já.

SketchUp býður upp á nokkrar áskriftarleiðir og hægt er að uppfæra úr SketchUp Pro í Pro Advanced Workflows, Pro Scan eða Studio ef þörf er á fleiri eiginleikum.

Viltu prófa SketchUp Pro?

SketchUp Pro hjálpar þér að hanna, sýna og útbúa verkefnagögn í þrívídd, allt frá fyrstu hugmynd að skýrum verkefnagögnum.

Fylltu út formið og við aðstoðum þig við að komast af stað og svörum spurningum um eiginleika, leyfi og hvernig SketchUp Pro getur nýst í þínu vinnuflæði.

Við getum meðal annars aðstoðað þig með:

  • Upplýsingar um prufutímabil og leyfisleiðir
  • Ráðgjöf um eiginleika og notkunarmöguleika
  • Ráðgjöf um 3D hönnun, þrívíddarframsetningu og gerð verkefnagagna

Forvitin/n að vita meira?

Ertu með spurningar um SketchUp?

Hafðu samband

Kasper Brünings

Kerfisráðgjafi

+354 415 0522