Algengar spurningar
Go-to-Market System (áður NBE)
Hvernig kaupi ég viðbótarleyfi eða geri breytingar á núverandi Autodesk leyfum?
Þú getur áfram keypt Autodesk hugbúnað í gegnum NTI. Hafðu samband við tengiliðinn þinn hjá NTI til að fá tilboð eða aðstoð við breytingar á núverandi leyfum.
Þegar pöntunin hefur verið staðfest sendir NTI hana áfram til Autodesk og þú færð staðfestingu frá Autodesk í tölvupósti.
Áskriftir og endurnýjun
Getur NTI hjálpað við að hafa umsjón með leyfunum mínum?
Já, við getum það. Vinsamlegast hafðu samband við NTI.
Af hverju að endurnýja í gegnum NTI?
Það eru ýmsir kostir við að endurnýja Autodesk áskriftir í gegnum NTI:
- Traustur samstarfsaðili: Við höfum áralanga reynslu af samstarfi við viðskiptavini okkar og góða þekkingu á þörfum þeirra.
- Sérfræðiráðgjöf: Sérfræðingar okkar aðstoða þig í gegnum ferlið og við umsýslu á Autodesk Account.
- Áreiðanleg þjónusta.
- NTI hugbúnaður: Fáðu meira út úr Autodesk hugbúnaðinum með lausnum frá NTI, þar á meðal My NTI Academy, vefkennslusvæði með fjölbreyttu námsefni og NTI FOR REVIT sem býður upp á yfir 100 verkfæri og eiginleika sem eru sérstaklega þróuð fyrir Revit notendur.
- Viðbótarþjónusta: Við bjóðum meðal annars upp á námskeið, innleiðingu, persónulega ráðgjöf og aðra sérfræðiþjónustu.
Er hægt að endurnýja öll Autodesk leyfi á sama degi?
Já, það er hægt. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig.
Hvernig endurnýja ég lausnir frá NTI?
Allar vörur og lausnir utan Autodesk verða áfram afgreiddar beint hjá NTI.
Greiðsla og reikningar
Þarf ég að breyta greiðsluupplýsingum mínum?
Greiðslur vegna Autodesk vara fara beint til Autodesk og því þarf að nota greiðsluupplýsingar frá Autodesk.
Smelltu hér til að nálgast upplýsingar og eyðublöð sem þarf til að skrá Autodesk sem birgja.Hvaða greiðslumöguleikar eru í boði hjá Autodesk?
Eftirfarandi greiðslumöguleikar* eru í boði:
- Reikningur: 30 daga greiðslufrestur, að því gefnu að reikningurinn þinn uppfylli skilyrði Autodesk.
- Beingreiðsla
- Paypal
- Kreditkort
*Greiðslumöguleikar geta verið mismunandi eftir löndum.
Fáum við strax aðgang þegar greitt er með reikningi í gegnum Autodesk Account?
Já. Þegar tilboðið hefur verið samþykkt og greiðslumáti valinn færðu aðgang að hugbúnaðinum.
Verða NTI viðbætur, þjálfun, þjónusta o.s.frv. sýnileg á Autodesk tilboðinu?
Nei, þú færð sérstakt tilboð frá NTI fyrir viðbætur, námskeið og aðra þjónustu. Þessi þjónusta er í boði hjá NTI og er því ekki hluti af tilboði Autodesk.
Tengiliður
Verður tengiliðurinn minn hjá NTI áfram minn aðaltengiliður?
Já, tengiliðurinn þinn hjá NTI mun áfram veita þér ráðgjöf um Autodesk og aðrar lausnir og aðstoða þig við að finna það sem hentar best þörfum fyrirtækisins og notenda.
.
Ef ég hef spurningar um áskriftir mínar, hvern á ég að hafa samband við?
Vinsamlegast hafðu samband við NTI
Einhverjar spurningar?
Hafðu samband við okkur og leyfðu okkur að aðstoða þig.
Sölustjóri NTI á Íslandi (Sales Manager)
+354 5371945
