Skip to main content Search

Leica BLK laser skanni

Hárnákvæm þrívíddarskönnun fyrir framleiðslu- og byggingariðnað

 

Gerðu nákvæmar stafrænar tvinnanir

Leica er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu á nákvæmum 3-víddarskönnum og mælilausnum sem mikið eru notaðar í framleiðslu- og byggingariðnaði. Leica skannar eru hannaðir til að búa til nákvæm stafræn afrit af flóknum rýmum, umhverfi og byggingarsvæðum. Háþróuð LiDAR tækni Leica og hárnákvæmir skannar fanga öll helstu smáatriði, og því verða mælingarnar og skjölunin nákvæm og ítarleg sem er mjög mikilvægt fyrir framleiðslu og byggingar.

precision-100px.png

Mikil nákvæmni og áreiðanleiki

Þrívíddarskannar Leica eru þekktir fyrir mikla nákvæmni og ítarlega skráningu og eru þ.a.l. tilvaldir fyrir flókin framleiðslu- og byggingarverkefni. Leica skannarnir færa þér þau gögn sem þú þarft til að tryggja nákvæmni á öllum stigum verkefnisins.

filter-100px.png

Skilvirk gagnasöfnun

Með hraðvirkum skönnum og háþróuðum hugbúnaði geta notendur auðveldlega safnað miklu magni af ítalrlegum gögnum. Þetta þýðir færri endurtekningar, færri heimsóknir á vinnusvæði og meiri tíma til greininga.

cooperation-red-100px.png

Einföld samþætting og miðlun

Auðvelt að samþætta gögn inn í BIM lausnum og deila þeim á milli aðila í teymi, auðveldar samvinnu og tryggir gæði í verkefninu allan líftíma þess.

Hverjir njóta góðs af Leica skönnum?

Leica skannar eru notaðir af fagfólki í framleiðslu- og byggingariðnaði, mannvirkjagerð, kvikmynda- og tölvuleikjagerð. Þar sem þörf er á mikilli nákvæmni, hraða við gagnasöfnun og ítarlegra gagna sem hægt er að samþætta í stafrænt verkflæði.

Nota skanna til að kortleggja núverandi byggingar og mannvirki fyrir nákvæm þrívíddarlíkön. Þetta er ómissandi bæði á hönnunarstigi og við endurbætur, þar sem nákvæmni skiptir sköpum.

Leica skannar eru þekktir fyrir áreiðanleika og mikla nákvæmni, sem gerir þá tilvalda til að skanna og búa til stafræn landslagslíkön til notkunar í byggingarframkvæmdum.

Skanna til að stjórna framkvæmdum og skrásetja byggingarferlið, tryggja að verkið sé unnið í samræmi við hönnunar- og gæðakröfur og til að lágmarka  mistök og tafir.

Notað til eignastýringar og viðhalds á byggingum og mannvirkjum, þar sem nákvæm skönnun og skráning eru nauðsynleg fyrir áframhaldandi rekstur og framtíðar skipula.

Leica skannar henta framleiðendum véla og vinnslulína t.d. í matvælaiðnaði mjög vel og færa þeim nákvæmar mælingar og gögn til hanna sínar lausnir inn í vinnslurýmin. Nákvæm og ítarleg gögn gerir þeim kleift að sérsníða lausnir og skipuleggja innleiðingu út frá hárnákvæmum þrívíddarlíkönum.

Örugg skönnun á flóknum svæðum með vélmennum

Með Leica BLK ARC og BLK2FLY skönnum er hægt að samþætta skönnun við vélmenni og dróna, sem gerir mögulegt að skanna sjálfvirkt eða með lágmarks aðkomu mannlegrar stýringar. Með þessum lausnum er auðvelt að skanna svæði og mannvirki sem erfitt er að komast að eins og háar byggingar og mannvirki, flókin rými og svæði. Þessir skannar tryggja nákvæma og skilvirka gagnasöfnun við erfiðar aðstæður.

Til dæmis er hægt að skipuleggja skönnunarleiðir með teikningum eða BIM-líkönum, sem sparar tíma og eykur öryggi, þar sem notandinn getur haldið sig í öruggri fjarlægð á meðan flókið eða hættulegt umhverfi er skannað.

Hjá NTI er hægt að leigja sjálfstætt vélmenni „Spot“ frá Boston Dynamics, sem ásamt Leica BLK ARC getur skannað erfið svæði á skömmum tíma.

Hafðu samband til að heyra nánar um möguleikana.

NTI er viðurkenndur dreifingaraðili Leica

Skoðaðu úrvalið okkar af Leica leysiskönnum

Leica BLK360 G2

Fyrirferðarlítill 3D leysiskanni fyrir nákvæma og skilvirka gagnasöfnun

Leica BLK360 G2 er fyrirferðarlítill og öflugur þrívíddar leysiskanni sem skilar nákvæmum punktaskýjum og víðmyndum í lit. Með einum hnappi skannar tækið umhverfið og flytur gögnin beint yfir á iPad, sem gerir skannann einfaldan í notkun – jafnvel á flóknum stöðum.

Hraðskönnunartækni og há upplausn spara tíma og gera mögulegt að safna milljónum gagnapunkta á aðeins nokkrum mínútum.

 

  • Nákvæmni: 4mm @ 10m
  • Drægni: 45 m
  • 4 mismunandi upplausnir
  • Heildarskönnun í staðlaðri upplausn ásamt 104 MP 360° víðmynd tekur innan við 1 mínútu.
  • 680.000 punktar á sekúndu
  • Visual Inertial System (VIS) fyrir sjálfvirka samsetningu og skráningu gagna
  • Minni: 180 GB, fyrir allt að 1.500 skannanir
  • Þyngd: 0,75 kg

Leica BLK2Go

Handheldur leysiskanni fyrir gagnasöfnun á ferðinni

Leica BLK2GO er handheldur leysiskanni sem gerir þér kleift að skanna umhverfið í rauntíma á meðan þú gengur um. Með háþróaðri SLAM-tækni (Simultaneous Localization and Mapping) býr BLK2GO til þrívíddarlíkön af flóknu umhverfi án þess að þörf sé á þrífæti. Hann hentar því vel fyrir hraðvirka og nákvæma skönnun á stöðum þar sem erfitt getur verið að koma hefðbundnum skanna fyrir.

BLK2GO sameinar nákvæma LiDAR-tækni, fjölmyndavélakerfi og leiðbeinandi ljósmerki sem auðvelda notkun og hjálpa til við að tryggja góðar niðurstöður.

  • Nákvæmni: 10mm @ 10m
  • Drægni: 25 m
  • 420.000 punktar á sekúndu
  • SLAM-tækni með hraðvirku LiDAR, myndavélakerfi og tregðumælieiningu fyrir sjálfvirka staðsetningu og leiðsögn
  • WLAN-tenging, endurhlaðanleg rafhlaða fyrir allt að 45 mínútna skönnun, sex klukkustunda gagnageymsla, USB-C tengi fyrir hraðan gagnaflutning og gagnavinnsla í tækinu
  • 12 MP myndavél fyrir smáatriði og þrjár víðmyndavélar fyrir sjónræna leiðsögn
  • Ljósmerki veita sjónræna endurgjöf og upplýsingar um stöðu skönnunar og gæði gagna
  • Þyngd: 0,77 kg með rafhlöðu

Leica BLK ARC

Sjálfvirk leysiskönnun fyrir róbota og annan búnað

Leica BLK ARC er háþróaður leysiskanni sem er hannaður til að tengjast róbotum og öðrum búnaði sem hægt er að festa hann á. Þannig er hægt að framkvæma skönnun á ferð með lágmarks aðkomu notanda og nýta skannann í fjölbreyttum verkefnum. BLK ARC er hybrid-skanni sem getur sameinað staðbundna og hreyfanlega skönnun í sama verkefni.

Með GrandSLAM-tækni (LiDAR SLAM, Visual SLAM og IMU) býður BLK ARC upp á nákvæma staðsetningu og gagnasöfnun, jafnvel í flóknu umhverfi.

 

  • Nákvæmni: 10mm @ 10m
  • Drægni: 25 m
  • 420.000 punktar á sekúndu
  • Þriggja myndavéla kerfi: 4,8 MP, 300° × 135°, global shutter
  • Minni: Allt að 24 klukkustunda skönnun með þjöppuðum gögnum / 6 klukkustundir með óþjöppuðum gögnum
  • Hannaður fyrir notkun bæði inni og úti
  • Þyngd: 0,69 kg

Leica RTC300

Einfaldur í notkun, mjög nákvæmur og hentar fyrir fjölbreytt verkefni

Leica RTC línan af 3D leysiskönnum er hönnuð til að einfalda og bæta mælingar og líkanagerð í fjölbreyttum verkefnum, allt frá arkitektúr og verkfræði til stórra innviðaverkefna. Með einföldu notendaviðmóti og sjálfvirkri skráningu gagna sparast bæði tími og vinna, um leið og tryggt er áreiðanlegt, nákvæmt og samræmt mælingagagn.

RTC300 er meðfærilegur og hentar því vel til notkunar bæði inni og úti við fjölbreyttar aðstæður. Fyrirferðarlítil og sterkbyggð hönnun tryggir áreiðanlega virkni og nákvæma skönnun á vettvangi.

 

  • Nákvæmni: 1,5mm @ 10m
  • Drægni: 85 m
  • 4 mismunandi upplausnir: 3, 6, 12 og 25 mm
  • Heildarskönnun í staðlaðri upplausn ásamt 432 MP 360° víðmynd tekur um 120 sekúndur
  • 1.000.000 punktar á sekúndu
  • Visual Inertial System (VIS) fyrir sjálfvirka samsetningu og skráningu gagna
  • Minni: 512 GB
  • Hitastig við notkun: -20°C til +50°C
  • Þyngd: 5,5 kg
  • IP55

Leica RTC500

Einfaldur í notkun, mjög nákvæmur og hentar fyrir fjölbreytt verkefni

Leica RTC línan af 3D leysiskönnum er hönnuð til að einfalda og bæta mælingar og líkanagerð í fjölbreyttum verkefnum, allt frá arkitektúr og verkfræði til stórra innviðaverkefna. Með einföldu notendaviðmóti og sjálfvirkri skráningu gagna sparast bæði tími og vinna, um leið og tryggt er áreiðanlegt, nákvæmt og samræmt mælingagagn.

RTC500 er meðfærilegur og hentar því vel til notkunar bæði inni og úti við fjölbreyttar aðstæður. Fyrirferðarlítil og sterkbyggð hönnun tryggir áreiðanlega virkni og nákvæma skönnun á vettvangi.

 

  • Nákvæmni: 1,5 mm @ 10 m
  • Drægni: 130 m
  • 4 mismunandi upplausnir: 3, 6, 12 og 25 mm
  • Heildarskönnun í staðlaðri upplausn ásamt 432 MP 360° víðmynd tekur um 90 sekúndur
  • 2.000.000 punktar á sekúndu
  • Visual Inertial System (VIS) fyrir sjálfvirka samsetningu og skráningu gagna
  • Minni: 512 GB
  • Hitastig við notkun: -20°C til +50°C
  • Þyngd: 5,5 kg
  • IP55

Leica RTC700

Einfaldur í notkun, mjög nákvæmur og hannaður fyrir krefjandi verkefni

Leica RTC línan af 3D leysiskönnum er hönnuð til að einfalda og bæta mælingar og líkanagerð í fjölbreyttum verkefnum, allt frá arkitektúr og verkfræði til stórra innviðaverkefna. Með einföldu notendaviðmóti og sjálfvirkri skráningu gagna sparast bæði tími og vinna, um leið og tryggt er áreiðanlegt, nákvæmt og samræmt mælingagagn.

RTC700 er meðfærilegur og hentar því vel til notkunar bæði inni og úti við fjölbreyttar aðstæður. Fyrirferðarlítil og sterkbyggð hönnun tryggir áreiðanlega virkni og nákvæma skönnun á vettvangi.

 

  • Nákvæmni: 1,5 mm @ 10 m
  • Drægni: 130 m
  • 6 mismunandi upplausnir: 0,8, 1,6, 3, 6, 12 og 25 mm
  • Heildarskönnun í staðlaðri upplausn ásamt 432 MP 360° víðmynd tekur um 90 sekúndur
  • 2.000.000 punktar á sekúndu
  • Visual Inertial System (VIS) fyrir sjálfvirka samsetningu og skráningu gagna
  • Verkferlar fyrir landmælingar innifaldir
  • Minni: 512 GB
  • Hitastig við notkun: -20°C til +50°C
  • Þyngd: 5,5 kg
  • IP55

Langar þig að heyra meira um þrívíddarskönnun?

Hafðu samband og fáðu meira að vita um möguleikana á bæði kaupum og leigu á þrívíddarskanna. Við bjóðum bæði fjárleigu og leigu á skönnum.

Vinsamlegast athugaðu að allir Leica 3D skannar þurfa nauðsynlegan hugbúnað.

Fylltu út eyðublaðið og við höfum samband við þig eins fljótt og auðið er til að fá óskuldbindandi samtal um þá fjölmörgu valkosti og sýnikennslu á Leica.

Fylltu út eyðublaðið

Hafðu samband

Hjá okkur starfa margir sérfræðingar sem búa yfir reynslu og þekkingu á hvaða lausnir henta best fyrir verkefnið.

Hlynur Garðarsson

Kerfisráðgjafi

+354 866 8941