Nýttu gervigreind í framsetningu með Enscape og Veras
Búðu til áhrifamiklar myndir hraðar í rauntíma með gervigreind.
🗓️Dagsetning: 11. september 2026
⏱️ Tími: kl. 09.00–09.45
Viltu kynnast möguleikunum sem gervigreind bíður uppá og hvað er hægt að gera í rauntíma?
Á þessari vefkynningu sýnum við hvernig forritin frá Chaos Group - Enscape og Veras á einfaldan og skilvirkan hátt geta aðstoðað þig við að þróa hugmyndir og útfærslur samtímis í gegnum allt hönnunarferlið. Þú sérð hvernig í rauntíma hvernig gervigreind vinnur þannig að þú getur á einfaldan hátt prófað mismunandi hugmyndir, skoðað ólíkar hönnunarútfærslur og kynnt verkefni með vandaðri myndrænni framsetningu án þess að þurfa að byggja allt upp frá grunni.
Hvort þú ert á fyrstu stigum hönnunarferlisins eða að leggja lokahönd á myndræna framsetningu verkefnisins gefa Enscape og Veras þér nýja möguleika til að vinna hraðar, prófa fleiri hugmyndir og auka sveigjanleika í hönnunarferlinu.
Hvað færðu út úr vefkynningunni?
Á vefkynningunni sýnum við meðal annars:
- Hvernig Enscape gerir þér kleift að sjá samstundis tillögur beint úr BIM-líkaninu
- Hvernig Veras nýtir gervigreind til að leggja fram nýjar hönnunartillögur og áhrifamiklar myndir
- Hvernig þú getur notað bæði textafyrirmæli og viðmiðunarmyndir til að stýra niðurstöðum gervigreindarinnar
- Hvernig þú getur á fljótlegan hátt prófað mismunandi efni, liti og hugmyndir að útfærslum án þess að breyta upprunalega líkaninu
- Hvernig gervigreind getur auðveldað samtal við viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila með því að gera hugmyndir sýnilegar fyrr í hönnunarferlinu
- Hvernig Enscape og Veras vinna með verkfærum á borð við Revit og Autodesk Forma (en hægt að nota með öðrum kerfum)
Þú færð einnig dæmi um hvernig gervigreind getur orðið eðlilegur hluti af núverandi verkferlum, allt frá fyrstu skissum til lokaútfærslu.
Fyrir hverja?Vefkynningin hentar meðal annars:
Hvort sem þú notar Enscape nú þegar eða vilt kynna þér hvernig gervigreind getur nýst í hönnunarferlinu færðu innsýn í nýja möguleika og aðferðir sem þú getur nýtt strax. |
Skráðu þig hér
Verum í góðu sambandi.
Sölustjóri NTI á Íslandi
Reykjavík - Ísland
+354 537 1945
