Skip to main content Search

Autodesk áskriftarleiðir

Sveigjanlegar áskriftarleiðir sem henta þínum rekstri


Sveigjanlegar áskriftarleiðir sem henta þínum þörfum

Þegar þú velur Autodesk hugbúnað hjá NTI geturðu valið þá áskriftarleið sem hentar þörfum fyrirtækisins best. Fyrir fyrirtæki sem vilja stöðugleika og fyrirsjáanleika bjóðum við upp á eins árs eða þriggja ára áskriftarleiðir. 

Fyrir fyrirtæki þar sem notkun Autodesk hugbúnaðar er breytileg er Autodesk Flex sveigjanleg lausn þar sem aðeins er greitt fyrir þá notkun sem á sér stað. Lausnin hentar vel fyrir verkefnatengda vinnu, tímabundna starfsmenn eða teymi sem nota hugbúnaðinn ekki daglega.

Veldu áskriftarleið

Eins árs áskrift

Vinsælasta áskriftarleiðin okkar. Hún veitir ótakmarkaðan aðgang að Autodesk hugbúnaði í eitt ár og felur í sér allar uppfærslur sem fylgja áskriftinni. Lausnin býður upp á fyrirsjáanlegan kostnað og gefur þér tækifæri til að endurmeta þarfir fyrirtækisins á hverju ári.

Þriggja ára áskrift

Þriggja ára áskrift hentar fyrirtækjum sem vilja tryggja sér langtímaaðgang að Autodesk hugbúnaði og draga úr áhrifum verðbreytinga og gengissveiflna. Auk þess fylgja henni kostir sem auðvelda umsýslu og gera leyfiskostnað fyrirsjáanlegri.

Endurnýjun áskriftar – einfalt og þægilegt

Við erum í reglulegu sambandi við viðskiptavini okkar varðandi endurnýjun Autodesk áskrifta. Hvort sem þú ert með eins árs eða þriggja ára áskrift tryggjum við að þú fáir allar nauðsynlegar upplýsingar og ráðgjöf með góðum fyrirvara áður en áskriftin rennur út.

Fyrir endurnýjun höfum við samband við þig og förum yfir fjölda leyfa, endurnýjunardagsetningu og hvort þörf sé á breytingum. Það gæti verið rétti tíminn til að fjölga eða fækka notendum eða velja aðra áskriftarleið sem hentar betur þínum rekstri. Ef fyrirtækið þitt er með margar áskriftir eða flóknari leyfisumsýslu aðstoðum við einnig við skipulagningu og umsýslu.

Når du fornyer gennem os, får du ikke kun fortsat adgang til Autodesk-værktøjer, men også den nyeste software og de opdateringer, der er inkluderet i din abonnementsplan.

Þegar þú endurnýjar áskriftina heldurðu áfram að hafa aðgang að Autodesk hugbúnaðinum og öllum uppfærslum sem fylgja áskriftinni. Við veitum ráðgjöf og aðstoð ef þú þarft á henni að halda.

Standard Plan eða Business Plan?

Standard Plan – innifalið í áskriftinni

Þetta er áskriftarleiðin sem flestir Autodesk notendur byrja með og hún er innifalin í öllum Autodesk áskriftum. Með Standard Plan færðu aðgang að leyfisumsýslu, notkunaryfirliti og grunn tækniaðstoð.

Innifalið í Standard Plan:

  • Single Sign-On (SSO)
  • Notkunaryfirlit
  • Grunn tækniaðstoð frá Autodesk á virkum dögum
  • Stafrænt nám frá Autodesk

Business Success Plan

Business Success Plan hentar meðalstórum og stórum fyrirtækjum sem vilja fá sem mest út úr Autodesk áskriftinni. Áætlunin felur í sér sérfræðiráðgjöf, markvissan stuðning og sérstakan Customer Success Manager frá Autodesk.

Innifalið í Business Success Plan:

  • Directory Sync (samstilling notendaskrár)
  • Ráðgjöf um bestu nýtingu Autodesk lausna
  • Forgangsþjónusta frá Autodesk allan sólarhringinn
  • Sérfræðiráðgjöf á þínu tungumáli*
  • Sérstakur Customer Success Manager frá Autodesk

*Ráðgjöfin fer aðallega fram á ensku. Önnur tungumál kunna að vera í boði samkvæmt nánara samkomulagi og ákvörðun Autodesk (t.d. japanska, þýska, franska og spænska).

Innkaupaferli Autodesk áskrifta

Haustið 2024 breyttist ferlið við kaup og endurnýjun Autodesk áskrifta fyrir fyrirtæki (breytingin á ekki við um opinbera aðila). Reikningagerð og greiðslur fara nú fram beint á milli viðskiptavinar og Autodesk. Opinberir aðilar kaupa hins vegar áfram hefðbundin leyfi í gegnum NTI. Kaup á Autodesk Flex tokens fara þó samkvæmt nýja innkaupaferlinu.

Þrátt fyrir þessar breytingar er NTI áfram þinn samstarfsaðili og veitir ráðgjöf, tilboð, stuðning og þjálfun í gegnum allt ferlið.

Læs mere om processen

Algengar spurningar

 

Abonnementsperioder

Áskriftarpantanir eru afgreiddar strax. Ef þú vilt hætta við pöntun þarftu að hafa samband beint við Autodesk. Þú getur einnig haft samband við okkur og við aðstoðum þig við ferlið. Hægt er að hætta við nýja eins árs eða þriggja ára áskrift innan 30 daga frá kaupum.

Á stuðningssíðunni okkar finnur þú upplýsingar um þjónustusamninga, ásamt upplýsingum um hvernig þú getur haft samband við okkur.

Þú getur sett Autodesk hugbúnaðinn upp á allt að þremur tækjum. Hugbúnaðinn má þó aðeins nota sá notandi sem áskriftin er skráð á og aðeins á einni tölvu í einu.

Já. Stjórnendur geta úthlutað bæði Autodesk Flex 

og áskriftum til mismunandi notenda. Ef notandi er með bæði Autodesk Flex og áskrift verður áskriftin alltaf notuð fyrst.

Til dæmis ef notandi er bæði með Autodesk Flex og AutoCAD áskrift verður áskriftin sjálfkrafa notuð þegar AutoCAD er opnað. Ef sami notandi opnar hins vegar Revit án áskriftar eru Flex tokens notuð í staðinn.

Standard- og Business-planer

Standard Plan er innifalið í öllum Autodesk áskriftum og því er enginn lágmarksfjöldi áskrifta. Ef þú ert aðalstjórnandi (Primary Administrator) geturðu uppfært í Business Success Plan ef fyrirtækið er með að lágmarki 50 gjaldgengar Autodesk áskriftir.

Standard Plan er innifalið í öllum Autodesk áskriftum. Uppfærsla í Business Success Plan er í boði gegn árlegu viðbótargjaldi fyrir hverja gjaldgenga Autodesk áskrift. Hafðu samband við okkur fyrir verðupplýsingar.

Allar Autodesk áskriftir innihalda Standard Plan. Ef þú vilt uppfæra í Business Success Plan geturðu haft samband við okkur og við aðstoðum þig við að finna þá lausn sem hentar þér best.

Allar Autodesk áskriftir innihalda Standard Plan án aukakostnaðar.

Ef þú vilt uppfæra í Business Success Plan þarf fjöldi Business Success Plan áskrifta að samsvara fjölda Autodesk áskrifta. Við förum yfir núverandi fjölda gjaldgengra áskrifta og sendum þér tilboð.

Aðeins fyrir þriggja ára Business Success Plan:

Ef þú kaupir fleiri Autodesk áskriftir á þriggja ára áskriftartímabilinu þarftu einnig að kaupa samsvarandi fjölda Business Success Plan áskrifta til að viðhalda öllum kostum áætlunarinnar fyrir þessar nýju áskriftir.

Þú getur keypt fleiri Autodesk áskriftir hvenær sem er. Við lok fyrsta og annars árs frá upphafi Business Success Plan áskriftarinnar fer fram árleg yfirferð (anniversary adjustment period). Þá færðu upplýsingar um hversu mörgum Business Success Plan áskriftum þarf að bæta við til að þær samsvari fjölda Autodesk áskrifta sem bætt hefur verið við á árinu.

Business Success Plan áskriftum er aðeins hægt að bæta við á þessari árlegu yfirferð.

Ef þú vilt fækka Business Success Plan áskriftum er það hægt við næstu endurnýjun. Þá geturðu fjölgað eða fækkað áskriftum eftir þörfum.

 

Hafðu samband við okkur

Ertu með spurningar? Hafðu endilega samband við okkur!

Árni Guðmundur Guðmundsson

Sölustjóri NTI á Íslandi

Reykjavík - Ísland

+354 537 1945